Fotbolti.net
16.07.26 - 15:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Baddi Borgars spáir í 14. umferð Lengjudeildarinnar

Baldvin Már og Kristinn Jakobsson á góðri stundu.

Baldvin Már og Kristinn Jakobsson á góðri stundu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spámaður
Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, var með einn réttan þegar hann spáði í síðustu umferð Lengjudeildarinnar.

Ný umferð hefst í kvöld og Baldvin Már Borgarsson ætlar að gera betur.
Afturelding 3 - 1 Leiknir R. (19:15 í kvöld)
Mosfellingar eru nánast að sanna sig sem aðeins of góðir fyrir þessa deild, klára Leikni heima.

Fylkir 1 - 1 Njarðvík (19:15 á morgun)
Hér mætast stálin stinn, þétt skák sem endar með jafntefli.

Grindavík 1 - 1 ÍR (14:00 á laugardag)
Jafntefliskóngarnir í þessari deild svíkja okkur ekki hér, ÍR þarf að fara að sækja stig og Grindvíkingar vilja alls ekki tapa.

Grótta 2 - 3 Ægir (14:00 á laugardag)
Mínir menn úr Höfninni lífsnauðsynlega þurfa sigur og sækja hann hér, Bjarki Rúnar setur í beast mode.

Þróttur R. 3 - 0 Völsungur (16:00 á laugardag)
Þróttarar þurfa að koma sér á beinu brautina, fá þeir mikið betra tækifæri til þess en gegn Völsungi heima? Nei er mitt svar við því.

HK 3 - 1 Vestri (19:15 á mánudag)
HK í Kórnum, Radic að spila fyrir Gunnar Heiðar, þarf ég eitthvað að rökstyðja þetta meira?

Fyrri spámenn:
Sigurður Hrannar (4 réttir)
Baddi Borgars (3 réttir)
Amin Cosic (3 réttir)
Áki Sölva (2 réttir)
Alexander Rafn (2 réttir)
Andri Júl (2 réttir)
Kristófer Ingi (2 réttir)
Markús Páll (2 réttir)
Halli Hróðmars (2 réttir)
Dagur Orri (2 réttir)
Adam Páls (2 réttir)
Ásgeir Orri (1 réttur)
Afturelding er á toppi deildarinnar.

Afturelding er á toppi deildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Lengjudeild karla

#LiðLmunStig
1Afturelding22+3245
2Þróttur R.22+2543
3Fylkir22+1340
4HK22+1238
5Njarðvík22+938
6Leiknir R.22+128
7ÍR22-628
8Grótta22-727
9Vestri22-1327
10Völsungur22-1226
11Grindavík22-1025
12Ægir22-449
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.