Stones á blaði hjá Arsenal - Liverpool blandar sér í baráttuna um Kone - Arbeloa vill tvo frá Real Madrid
Besta karla
FH
LL 0
0
Breiðablik
Lengjudeild karla
HK
LL 6
2
Vestri
Besta karla
Keflavík
LL 5
2
ÍA
Besta kvenna
Gri/Nja
LL 4
2
Þróttur R.
KR
5
0
Stjarnan
Arnór Ingvi Traustason '25 1-0
Eiður Gauti Sæbjörnsson '29 2-0
Eiður Gauti Sæbjörnsson '51 3-0
Aron Sigurðarson '54 4-0
Aron Sigurðarson '61 , víti 5-0
19.07.2026  -  16:00
Meistaravellir
Besta karla
Aðstæður: Skýjað og úði
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Áhorfendur: 847
Maður leiksins: Aron Sigurðarson
Byrjunarlið:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
7. Finnur Tómas Pálmason ('78)
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
11. Aron Sigurðarson (f)
17. Luke Rae ('67)
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
23. Arnór Ingvi Traustason ('78)
26. Hrafn Tómasson
28. Hjalti Sigurðsson
45. Galdur Guðmundsson ('78)
77. Orri Hrafn Kjartansson ('67)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m)
5. Birgir Steinn Styrmisson ('78)
8. Stefán Árni Geirsson ('78)
14. Jason Daði Svanþórsson ('67)
18. Jón Ernir Ragnarsson
24. Fannar Heimisson ('78)
29. Aron Þórður Albertsson
30. Sigurður Breki Kárason ('67)
37. Ólafur Sigurðsson
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Hilmar Árni Halldórsson (AÞ)
Guðmundur Óskar Pálsson (Leikgr.)
Magnus Börheim (Sjúkraþj.)
Björn Valdimarsson (Forráðam.)
Lúðvík Júlíus Jónsson (Liðsstj.)
Guðjón Örn Ingólfsson (Styrktarþj.)
Jamie Paul Brassington (MÞ)

Gul spjöld:
Finnur Tómas Pálmason ('27)
Galdur Guðmundsson ('58)
Jason Daði Svanþórsson ('84)

Rauð spjöld:
Skýrslan
Leik lokið!
Afar sannfærandi KR sigur! 5-0 og í fyrsta sinn sem KR heldur hreinu á tímabilinu, því ber að fagna!
Skýrsla og viðtöl væntanleg.
Ég þakka fyrir mig.
91. mín
DAUÐAFÆRI Aron Sig sendir boltann á Eið Gauta sem er einn gegn Árna en skýtur í stöngina, síðan fær Fannar frákastið en skýtur fram hjá!
90. mín
Tvær mínútur í uppbótartíma
90. mín Gult spjald: Þorri Mar Þórisson (Stjarnan)
Brýtur á Sigurði Breka.
88. mín
KR dauðafæri! Stefán Árni fær afbragðsfæri inni í markteignum en sýnist Árni verja þetta, KR fær horn.
88. mín Gult spjald: Benedikt V. Warén (Stjarnan)
Brýtur á Sigurði Breka.
87. mín
Stjarnan haldið í boltann síðustu mínútur en ekki náð að ógna marki KR.
84. mín
Birnir Snær tók spyrnuna fasta meðfram jörðinni en Halldór sá við honum.

Stefnir í fyrsta hreina lak KR á tímabilinu.
84. mín Gult spjald: Jason Daði Svanþórsson (KR)
Brýtur á Árna Vill rétt á hættulegum stað.
82. mín
Góð sókn KR endar með því að Jason Daði kemur með fasta fyrirgjöf inn á teiginn sem enginn KR-ingur nær til.
80. mín
Inn:Ari Leifsson (Stjarnan) Út:Sigurður Gunnar Jónsson (Stjarnan)
Frumraun Ara fyrir Stjörnuna.
78. mín
Inn:Birgir Steinn Styrmisson (KR) Út:Finnur Tómas Pálmason (KR)
78. mín
Inn:Stefán Árni Geirsson (KR) Út:Galdur Guðmundsson (KR)
78. mín
Inn:Fannar Heimisson (KR) Út:Arnór Ingvi Traustason (KR)
76. mín
Spyrnan hátt yfir markið Aron fékk séns til að ná í þrennuna en klikkaði.
75. mín Gult spjald: Alex Þór Hauksson (Stjarnan)
Tæklar Arnór Ingva rétt fyrir utan teig Stjörnunnar. Aron Sig undirbýr sig að taka spyrnuna.
75. mín
Leikurinn hefur aðeins róast síðustu mínútur en KR undirbýr þrefalda skiptingu.
69. mín
Hætta á teig Stjörnunnar Varamennirnir strax komnir í boltann en það skapast mikill darraðadans á teignum en enginn nær að koma boltanum á markið.
67. mín
Inn:Sigurður Breki Kárason (KR) Út: Luke Rae (KR)
67. mín
Inn:Jason Daði Svanþórsson (KR) Út:Orri Hrafn Kjartansson (KR)
Frumraun hans fyrir KR
66. mín
Aron nálægt þrennunni! KR keyrir upp völlinn og Luke rennir boltanum á Aron sem er togaður niður en hann nær að standa þetta af sér og skýtur á markið, boltinn fór í varnarmann og aftur fyrir.
65. mín
Inn:Þorri Mar Þórisson (Stjarnan) Út:Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan)
64. mín
Frábærlega gert hjá KR Orri Hrafn með skemmtilegan snúning og keyrir upp völlinn, rennir boltanum á Galdur sem kemur með fyrirgjöf sem Eiður skallar að marki en ekki nægilega fast.
61. mín Mark úr víti!
Aron Sigurðarson (KR)
5-0 og fyrirliðinn nálgast markametið!! Hægri fótur hægra horn. Árni Snær fór í rétta átt en átti ekki möguleika.

Aron kominn með 16 mörk og mótið rétt rúmlega hálfnað.
59. mín
KR fær víti! Orri Hrafn sækir vítið en þessi sókn hjá KR var stórkostleg. Spiluðu upp allan völlinn með einnar snertingar fótbolta.
58. mín Gult spjald: Galdur Guðmundsson (KR)
Keyrir inn á teiginn og fellur við, ÞÞÞ dæmir dýfu.
57. mín
Mikið fram og til baka þessa stundina Stjörnumenn eru að reyna að lífga aðeins upp á þetta og KR-ingar hafa lítinn áhuga á að leggjast til baka.
54. mín MARK!
Aron Sigurðarson (KR)
Þetta fer að vera vandræðalegt Aron Sig fær boltann í teignum hægra megin og tekur snögga hreyfingu til vinstri og setur hann smekklega í fjærhornið.

4-0 og KR-ingar engu nærri hættir.
51. mín MARK!
Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Eiður að klára leikinn! Aftur keyra KR-ingar hratt upp völlinn en Luke Rae ætlar að gefa inn fyrir á Eið, boltinn flækist einhvern veginn á Milli Gustav Kjeldsen og Eiðas og hann sleppur einn í gegn og klárar vel á nærstöngina.
48. mín
KR byrjar strax að ógna marki Stjörnunnar en Árni Snær ver vel frá Aroni Sig.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
46. mín
Inn:Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan) Út:Örvar Logi Örvarsson (Stjarnan)
46. mín
Inn:Benedikt V. Warén (Stjarnan) Út:Örvar Eggertsson (Stjarnan)
46. mín
Inn:Birnir Snær Ingason (Stjarnan) Út:Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan)
45. mín
Hálfleikur
KR-ingar leiða mjög sannfærandi Frábær frammistaða hjá heimamönnum en Garðbæingar hafa ekki ógnað marki KR af neinu viti.
Tökum okkur 15 mínútna hlé.
45. mín
+2 Aron Sig með spyrnuna sem fer yfir vegginn og í þverslána. Árni Snær hreyfðist ekki á línunni.
45. mín Gult spjald: Sigurður Gunnar Jónsson (Stjarnan)
Rígheldur í Eið og þetta virðist eiga að vera víti en ÞÞÞ dæmir aukaspyrnu við teigslínuna.
45. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma
45. mín
Bjarki Hauks... Tekur innkast sem fer rakleiðis útaf, áhugavert.
44. mín Gult spjald: Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan)
Braut á Hrafni en Aron fékk boltann og reyndi skemmtilega vippu af löngu færi, rétt fram hjá.
43. mín
KR nálægt því að bæta við Arnór Ingvi með fasta sendingu á Luke Rae sem fer utan á Örvar Loga en skýtur rétt fram hjá.
41. mín
Aftur liggur Örvar eftir en nú virðist hann hafa fengið högg á öxlina, stendur þó fljótt upp.
40. mín
Enginn annar en Örvar sem skallar frá Góð fyrirgjöf frá Aroni Sig á teiginn sem Örvar nær að skalla í burtu en KR fær horn.
39. mín
Örvar og Eiður skokka hér inn á völlinn í sameiningu þegar KR fær hornspyrnu.
37. mín
Örvar staðinn upp og virðist ætla að halda áfram Kominn með umfangsmikinn vafning um höfuðið og röltir út af vellinum og þarf að bíða þar í mínútu.
35. mín
Örvar liggur enn niðri en Eiður er staðinn upp. Börur komnar á völlinn.
33. mín
Þungt samstuð Hornspyrna frá Stjörnunni sem Örvar Eggerts skallar rétt fram hjá en hann og Eiður skella saman og liggja báðir eftir.
32. mín
Áfram sækja heimamenn Vel spilað hjá Arnóri Ingva og Aroni Sig, taka góðan þríhyrning en Arnór rennir síðan boltanum út á Luke Rae sem er við teiginn en skot hans með vinstri fæti fer hátt yfir markið.
29. mín MARK!
Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Nú var það skyndisókn Orri stígur Jóhann Árna út og Galdur kemst í boltann á miðjum vellinum og kemur með langa sendingu upp hægri kantinn þar sem KR eru þrír á tvo. Luke rae sker inn á teiginn, með tvo með sér en skýtur beint á Árna sem ver boltann út í teiginn og þar var Eiður Gauti fyrstur á boltann með mann í sér þó.

2-0 KR!!
27. mín Gult spjald: Finnur Tómas Pálmason (KR)
Tæklar Árna Vill ansi hressilega.
25. mín MARK!
Arnór Ingvi Traustason (KR)
Stoðsending: Galdur Guðmundsson
Frábært mark Enn ein góð sóknin hjá KR en Galdur var með boltann við endalínuna og nær að lyfta honum inn á teiginn þar sem þrír KR-ingar gerðu sig líklega en það var Arnór Ingvi sem stangaði boltann í fhjærhornið.

Sanngjörn forysta.
22. mín
DAUÐAFÆRI!! Aron Sig með stórkostlega hælsendingu inn fyrir á Eið Gauta sem var aleinn gegn Árna Vill en skaut langt fram hjá markinu. Ólíkt markaskoraranum að fara svona illa með færi.

Langlangbesta færi leiksins!!!
20. mín
Árni Vill! Með góða aukaspyrnu sem fer rétt yfir markið. Halldór skutlaði sér í þetta en boltinn virtist vera á leiðinni undir slána.
18. mín
Luke Rae kemur með góðan bolta inn á teiginn sem Eiður Gauti rétt nær til en skallinn hans er fram hjá.
16. mín
KR-ingar halda áfram að sækja Löng sókn KR þar sem þeir eiga nokkur skot fyrir utan teiginn en Árni varði eitt og annað blokkað áður en Hjalti Sig tekur það þriðja sem fer yfir markið.
14. mín
KR skora!! En rangstæða... Frábær sókn hjá KR-ingum sem sundurspila vörn Stjörnunnar og Luke Rae kemur með bolta inn á teiginn þar sem Aron Sig rennir honum í tómt markið en er samstundis flaggaður rangstæður.
8. mín
Orri Hrafn! Fær boltann inni á teignum og nær að koma sér fram hjá Jóhanni Árna og tekur fast skot á nærstöngina en Árni Snær ver vel.
7. mín
Við hornspyrnuna myndast mikil hætta inni á teig Stjörnunnar og einhver köll um hendi en að lokum hreinsar Stjarnan þessu burt.
6. mín
Fyrsta færið! Stjarnan tapar boltanum í uppspili og Aron Sig rennir boltanum á Galdur sem er í góðu færi en Árni Snær ver boltann yfir markið.
3. mín
Galdur gerir þetta vel Fer auðveldlega fram hjá Bjarka Haukssyni og kemst inn á teiginn og ætlar að lyfta boltanum á fjærstöngina en Árni Snær kemst í boltann.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir hefja leik
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völlinn Stúkan tekur hressilega við sér og klappar vel fyrir leikmönnunum.
Fyrir leik
Markaleikur? Það held ég
Fyrir leik
Nýir leikmenn beggja liða að spila sinn fyrsta leik Ari Leifsson var kynntur sem nýr leikmaður Stjörnunnar á dögunum en hann hefur verið í atvinnumennsku síðan 2020.


Árni Vilhjálmsson var einnig kynntur sem leikmaður Stjörnunnar en hann var einnig orðaður við heimkomu í Breiðablik.


Jason Daði gekk til liðs við KR í lok júní en má nú spila sinn fyrsta leik fyrir félagið.
Fyrir leik
Spámaðurinn Damir Muminovic, leikmaður Grindavíkur, spáir markaleik:

Þetta verður markaleikur eins og flestir aðrir leikir hjá KR. Stjarnan er að fá nýja menn inn í liðið líka en það mun ekki breyta neinu, held ég, í þessum leik. Öruggur sigur KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




Andri Stefánsson
Fyrir leik
Fyrri viðureignir liðanna Liðin mættust í 6. umferð Bestu deildar á Samsungvellinum í rosalegum leik en sá endaði 2-3 fyrir KR. Stjarnan skoraði tvö mörk rétt fyrir hálfleiksflautið en KR-ingar komu til baka í síðari hálfleik þar sem endurkoman var fullkomnuð er Ástbjörn Þórðarson skoraði sigurmark leiksins á 87. mínútu.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Það var síðan fimm dögum síðar sem liðin mættust aftur á Samsungvellinum, þá var það í Mjólkurbikarnum en þar fór Stjarnan með sigur af hólmi, 2-1 enduðu leikar. Það var jafnframt fyrsta tap KR á tímabilinu en tvenna frá Emil Atla gerði gæfumuninn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Dómarateymið Þórður Þorsteinsson Þórðarson er dómari leiksins en honum til aðstoðar eru þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Antoníus Bjarki Halldórsson. Fjórði dómari er Pétur Guðmundsson og dómaraeftirlitsmaður er Gylfi Þór Orrason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Stjarnan Stjarnan er í 7. sæti en liðið hefur náð í 15 stig í fyrstu 14 leikjum mótsins. Með sigri fer liðið upp fyrir Keflavík og í 6. sætið en þeir spila á morgun gegn Blikum á heimavelli. Stjarnan er með -3 í markatölu þar sem liðið hefur skorað 28 mörk og fengið á sig 31.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
KR Þetta KR lið er ótrúlegt fótboltalið en eftir 15 leiki er liðið í 3. sæti Bestu deildarinnar með 32 stig, stigi á eftir Fram og átta stigum á eftir toppliði Víkings. KR hefur skorað 53 mörk í leikjum sínum, um 3.5 mörk í leik að meðaltali en liðið hefur hins vegar fengið á sig 36 mörk, næstmest allra liða í deildinni en aðeins botnliðið, Þór Akureyri, hefur fengið á sig fleiri mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Meistaravellir er staðurinn! Komið sæl fagra fólk og verið velkomin í beina textalýsingu fyrir leik KR og Stjörnunnar í 15. umferð Bestu deildar karla. Leikurinn fer fram í Vesturbænum þar sem KR-ingar freista þess að endurheimta 2. sætið á meðan Garðbæingar geta komist í efri hlutann í fyrsta sinn í langan tíma.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Gustav Kjeldsen
7. Örvar Eggertsson ('46)
8. Jóhann Árni Gunnarsson ('46)
10. Daníel Finns Matthíasson
14. Bjarki Hauksson
24. Sigurður Gunnar Jónsson ('80)
29. Alex Þór Hauksson (f)
32. Örvar Logi Örvarsson ('46)
94. Árni Vilhjálmsson
99. Andri Rúnar Bjarnason ('65)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
1. Darri Bergmann Gylfason
4. Þorri Mar Þórisson ('65)
11. Birnir Snær Ingason ('46)
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason ('46)
19. Ari Leifsson ('80)
22. Emil Atlason
23. Benedikt V. Warén ('46)
30. Markús Andri Daníelsson Martin
37. Benjamín Björnsson
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Jón Þór Hauksson (Þ)
Hákon Ernir Haraldsson (AÞ)
Lúðvík Már Matthíasson (Sjúkraþj.)
Brynjar Kristmundsson (AÞ)
Brynjar Gauti Guðjónsson (Liðsstj.)
Rajko Stanisic (MÞ)

Gul spjöld:
Jóhann Árni Gunnarsson ('44)
Sigurður Gunnar Jónsson ('45)
Alex Þór Hauksson ('75)
Benedikt V. Warén ('88)
Þorri Mar Þórisson ('90)

Rauð spjöld: