Fotbolti.net
@hoddi23Hörður Snævar Jónsson
Hörður Snævar Jónsson
Pepsi-deild karla
Hásteinsvöllur
Völlurinn blautur og svolítið rok
ÍBV
ÍBV
0 - 2
Grindavík
Grindavík
0 - 180' Ólafur Örn Bjarnason0 - 284' Magnús Björgvinsson
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
0. mín
Verið velkominn í beina textalýsingu frá leik ÍBV og Grindavíkur sem fer fram í Eyjum í dag í lokaumferð Pepsi deildar karla. Hér í Eyjum er mikið undir, Eyjamenn þurfa stig til að ná að tryggja sæti sitt í Evrópukeppni og þá er Grinadvík í fallsæti og þurfa helst að vinna en jafntefli gæti dugað falli önnur úrslit með þeim!
0. mín
Það er að sjálfsögðu smá rok hérna í Eyjum en það er nánast svo að heimamenn kalla þetta logn þetta er hinsvegar ágætis rok og hefur bætt í það frá því að undirritaður mætti á Eyjuna í morgun!
0. mín
Þórarinn Ingi Valdimarsson er í miðverðinum í dag með Rasmus en Brynjar Gauti Guðjónsson sem fékk rautt gegn KR er eitthvað tæpur og er á bekknum.
0. mín
Umbúðirnar sem Tryggvi Guðmundsson er með á höfðinu eru í dýrara lagi en þær hylja skurðin sem hann er með vel!
0. mín
Það styttist í leikinn hérna í Eyjum og fólk er að týnast á völlinn en þetta er eins og allir ættu að vita síðasti leikur Heimis Hallgrímssonar með ÍBV liðið í bili að minnsta kosti. Magnús Gylfason tekur við liðinu af honum en hann ku vera mættur til Eyja é leikinn!
1. mín
Leikurinn er hafinn hérna í Vestmannaeyjum en það virðist vera að lægja eitthvað og gera betra veður en það gæti breyst aftur enda getur allt gerst hérna í Eyjum.
8. mín
Guðmundur Þórarinsson var kominn einn gegn Óskari Péturssyni en tók afar heimskulega ákvörðun og ætlaði að vippa boltanum en hitti boltann illa og Óskar greip boltann auðveldlega.
9. mín
Leikurinn byrjar fjörlega og bæði lið reyna að sækja, þetta gærði orðið fjörugur leikur en Eyjamenn byrja þó betur.
16. mín
Eyjamenn fá vítaspyrnu en brotið var á Tryggva Guðmundssyni!
16. mín
Óskar Pétursson ver vítaspyrnuna frá Tryggva Guðmundssyni, Grindvíkingar voru ósáttir við spyrnuna og fagna því mikið!
19. mín
Grindvíkingar eru uppi eins og staðan er núna því Keflavík er að vinna Þór 2-0.
21. mín
Tryggvi Guðmundsson hikar ekki við að fara í skallaboltana þrátt fyrir þessar miklu umbúðir á hausnum.
ÍBV
22. mín
Gult spjald

Þórarinn Ingi Valdimarsson

22. mín
Grindvíkingar eru aftur komnir í fallsæti því Þórsarar hafa skorað mark!
30. mín
Grindvíkingar eru að sækja í sig veðrið hérna og setja pressu á Eyjamenn þessar mínúturnar!
38. mín
Jamie McCunnie var ekki langt frá því að setja boltann í eigið net eftir fyrirgjöf frá Ian Jeffs en boltinn fór rétt framhjá stönginni!
45. mín
Tryggvi Guðmundsson var nálægt því að slá markametið þarna en Óskar Pétursson varði vel frá Tryggva í góðu færi! Þá er búið að flauta til hálfleiks hér í Eyjum eftir færið!
45. mín
Grindvíkingar eru niðri þegar flautað hefur verið til hálfleiks í leikjum fallbaráttunnar. Staðan er markalaus í Vestmannaeyjum en Þórsarar hanga uppi á einu marki sem stendur. Þeir hafa skorað fjórum mörkum meira en Grindavík! Hálfleikur: Fram - Víkingur 1-1 ÍBV - Grindavík 0-0 Keflavík - Þór 2-1 Staðan núna: 8. Keflavík 24 stig (-5) 9. Fram 22 stig (-9) 10. Þór 21 stig (-13) 11. Grindavík 21 stig (-13)
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn hérna í Eyjum en hvorugur þjálfari gerir breytingar!
46. mín
Heimir Hallgrímsson gerir taktískar breytingar í hálfleik. Matt Garner kemur í miðvörðinn fyrir Þórarinn Inga sem fer á vinstri kant og Guðmundur Þórarinsson fer í vinstri bakvörð.
46. mín
Einar Ingi Jóhannsson varadómari spurði Heimir Hallgrímsson hvort hann hefði gert breytingar á sínu liði í hálfleik. ,,Fannst þér vera þörf á því,\" svaraði Heimir léttur að venju.
49. mín
Þórarinn Ingi skýtur yfir markið nánast á línu eftir fyrirgjöf frá Arnóri Eyvari. Eitt af klúðrum sumarsins það er alveg á hreinu.
62. mín
Tryggvi Guðmundsson er eini leikmaður ÍBV sem er að koma sér í færi þessa stundina og var ekki langt frá því að skora þarna en enn og aftur er Óskar Pétursson vel á verði!
67. mín
Það er þvílík rigning hérna í Eyjum þessa stundian og völlurinn var nú blautur og þungur fyrir!
Grindavík
71. mín
Gult spjald

Matthías Örn Friðriksson

72. mín
Þar sem Framarar eru að vinna Víkinga 2-1 hefur staðan í fallbaráttunni breyst. Þórsarar eru enn að hanga uppi á fleiri mörkum skoruðum en Grindavík en það má lítið út af bregða. Lítur út fyrir að það verði Þór eða Grindavík sem fari niður nema eitthvað mikið breytist. Staðan núna: 8. Keflavík 24 stig (-5) 9. Fram 24 stig (-8) 10. Þór 21 stig (-13) 11. Grindavík 21 stig (-13)
Grindavík
78. mín
InnBjarni Þórarinn Hallfreðsson
ÚtStefán Þór Pálsson
Haukur Ingi fer af velli og Pospisil kemur inná. Nær hann að tryggja sæti Grindavíkur í deildinni?
Grindavík
80. mín
MAAAARK!

Ólafur Örn Bjarnason

Þjálfarinn sjálfur skorar með skalla eftir horn Scott Ramsey!!! Þvílíkt og annað eins. Grindavík er uppi eins og staðan er núna. Ljóst er að sama hvernig aðrir leikir fara þá heldur Grindavík sér uppi með sigri.
Grindavík
84. mín
MAAAARK!

Magnús Björgvinsson

Grindvíkingar eru að bjarga sér því Magnús Björgvinsson slapp einn í gegn og skoraði en það var mikil og góð rangstöðulykt af markinu!
Grindavík
88. mín
InnRay Anthony Jónsson
ÚtScott Ramsay
ÍBV
88. mín
InnKjartan Guðjónsson
ÚtAaron Spear
89. mín
Þórsarar eru í mjööög slæmum málum þar sem Grindavík er 2-0 yfir í Vestmannaeyjum! Þvílíkt og annað eins. Þór er á leiðinni niður. Staðan núna (eftir sirka 89 mín): Fram - Víkingur 2-1 ÍBV - Grindavík 0-2 Keflavík - Þór 2-1 Staðan núna: 8. Keflavík 24 stig (-5) 9. Fram 24 stig (-8) 10. Grindavík 23 stig (-11) 11. Þór 21 stig (-13)
90. mín
Tryggvi Guðmundsson klikkar úr vítaspyrnu, númer tvö í þessum leik. Hreint ótrúlegt, markametið fellur ekki í dag. það er á hreinu
90. mín
Leiknum er lokið hérna í Eyjum. Eyjamenn í Evrópusæti og Grindavík hélt sér.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.