Fotbolti.net
@snorrihSnorri Helgason
Snorri Helgason
Pepsi-deild karla
Fylkisvöllur
Ískalt úti og vindur
Fylkir
Fylkir
3 - 5
FH
FH
Davíð Þór Ásbjörnsson 10'1 - 01 - 138' Matthías Vilhjálmsson1 - 241' Atli Viðar Björnsson1 - 343' Björn Daníel SverrissonMagnús Þórir Matthíasson 45'2 - 32 - 452' Atli Viðar Björnsson2 - 563' Ólafur Páll SnorrasonJóhann Þórhallsson 73'3 - 5
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
0. mín
Byrjunarliðin eru klár hér í Árbænum í síðasta leik Ólafs Þórðarsonar með Fylkisliðið. Heimildir herma að hann sé að taka við Víkingsmönnum en það þýðir að hann yrði þá fjórði þjálfari þeirra á þessu ár
0. mín
Tommy Nielsen er líka að fara að spila sinn síðasta leik á ferlinum en hann er búinn að tilkynna að hann ætli að hætta eftir þetta tímabil.
0. mín
Þetta verður athyglisverður leikur að fylgjast með því FH liðið er á pappírunum töluvert sterkara liðið fyrirfram. Fylkir teflir fram mörgum ungum og óreyndum leikmönnum á meðan FH-ingar stilla upp sínu allra sterkasta liði. Svo sannarlega hvítt og svart reynslumunurinn hér. En það er ekki spurt að því inn á vellinum, sjáum hvað setur.
0. mín
Það er nýr kafli í lífi Tommy Nielsen sem er að spila sinn síðasta leik á ferlinum eignaðist barn á fimmtudaginn. Óskum við honum að sjálfsögðu til hamingju með þann áfanga!
0. mín
Liðin fara fljótlega að ganga til vallar. Vonandi sýna bæði lið ágætis fótbolta hér í dag. FH-ingar vilja örugglega klára þetta annað sæti en Fylkismenn hafa í raun að engu að keppa nema stoltinu.
1. mín
Leikur hafinn hér á Fylkisvelli og það eru FH-ingar sem byrja með boltann og sækja að íþróttahúsinu.
4. mín
Atli Viðar Björnsson á fyrsta færi leiksins. Hann á þá skot að marki eftir skalla frá Tommy Nielsen en skot hans er varið af varnarmanni á línu.
6. mín
Dauðafæri. Atli Guðnason er sloppinn einn á móti markmanni eftir laglegt þríhyrningaspil við nafna sinn Viðarsson en skot hans framhjá.
7. mín
Elís Rafn Björnsson ungur leikmaður Fylkismann á laglegt skot rétt framhjá marki en líklega var Gunnleifur með þennan bolta allan tímann.
9. mín
Það er farið að hvessa ansi hressilega á FH markið og auk þess er byrjað að rigna. FH-ingar virðast hinsvegar ætla að stjórna ferðinni í þessum leik og halda boltanum ágætlega sín á milli.
Fylkir
10. mín
MAAAARK!

Davíð Þór Ásbjörnsson

Davíð Þór Ásbjörnsson skorar laglegt skallamark. Ekki ósvipað markinu sem Ríkharður Daðason skoraði gegn Frakklandi 99´. Klaufalegt úthlaup hjá Gunnleifi í markinu og Fylkismenn skyndilega komnir yfir.
12. mín
Freyr Bjarnason á skalla eftir hornspyrnu sem er bjargað á línu. Fylkismenn bruna svo í sókn og það er Styrmir Erlendsson sem er kominn einn inn fyrir en Ásgeir Gunnar náði að stöðva hann og færið rann út í sandinn.
20. mín
Elís Rafn Björnsson á skot að marki sem Gunnleifur Gunnleifsson ver nokkuð auðveldlega. Leikurinn hefur róast mjög mikið niður og lítið um færi miðað við upphafsmínúturnar.
24. mín
Atli Viðar Björnsson á hörkuskot að marki sem Fjalar ver meistaralega. Þrumuskot en vel varið.
25. mín
Freyr Bjarnason skallar framhjá fyrir opnu marki. Þetta var algjört dauðafæri. FH-ingar farnir að þjarma að heimamönnum.
29. mín
Dauðafæri! Andri Már Hermannsson er einn á markteig eftir frábæran sprett frá Alberti Ingasyni sem renndi boltanum á hann en Gunnleifur Gunnleifsson ver frábærlega!
32. mín
Aftur á Albert Ingason góðan sprett upp hægri kantinn og leikur á Tommy Nielsen nýbakaðan föður og kemur boltanum fyrir. Elís Rafn Björnsson náði hinsvegar ekki almennilegu skoti að marki.
35. mín
Og aftur er það Albert sem fer upp hægri kantinn. Nákvæmlega eins og áðan fer hann upp að endamörkum og gefur inn í teiginn á Styrmi Erlendsson en skot hans yfir. Varnarmenn FH virðast ekki alveg vera með.
37. mín
Atli Viðar Björnsson klobbar Baldur Bett og sendir á Atli Guðna sem á skot sem Fjalar ver glæsilega.
FH
38. mín
MAAAARK!

Matthías Vilhjálmsson

Sending utan af hægri kantinum ratar inn á markteig þar sem Matthías er rétt á undan Fjalari. Tæklar boltann rétt yfir Fjalar og boltinn lekur inn.
FH
41. mín
MAAAARK!

Atli Viðar Björnsson

Atli Viðar skorar með laglegu skoti framhjá Fjalari. Atli Guðnason á þá frábæran einleik sem endar reyndar með því að hann skýtur boltanum í varnarmann Fylkis og boltinn hrekkur fyrir Atli Viðar sem þakkar pent fyrir sig.
FH
43. mín
MAAAARK!

Björn Daníel Sverrisson

Björn Daníel skorar hér stórglæsilegt mark. Hann skorar úr bakfallsspyrnu reyndar af stuttu færi en frábærlega klárað og FH-ingar eru heldur betur búnir að snúa þessu við fyrir sig.
Fylkir
45. mín
MAAAARK!

Magnús Þórir Matthíasson

Þvílík veisla! Albert Brynjar Ingason skorar hér glæsilegt skallamark eftir góða sendingu frá Elís Rafni Björnssyni og staðan orðin 3-2. Strax eftir miðjuna flautar dómari leiksins til hálfleiks.
46. mín
Leikurinn er hafinn að nýju og það eru Fylkismenn sem sem byrja síðari hálfleik.
Fylkir
46. mín
InnJóhann Þórhallsson
ÚtAndri Már Hermannsson
Fylkismenn gera breytingu í hálfleik.
48. mín
Ágætur dómari leiksins flautar hér til leiksloka. Einum allra skemmtilegasta leik sumarsins er hér með lokið og nú fá FH-ingar medalíu fyrir að lenda í öðru sæti deildarinnar.
49. mín
Matthías Vilhjálmsson á skalla einn og óvaldaður á markteig en honum bregst bogalistin og boltinn framhjá!
FH
52. mín
MAAAARK!

Atli Viðar Björnsson

Atli Viðar Björnsson skorar laglegt mark eftir góða sendingu af vinstri kantinum. Klippir boltann snyrtilega í markið!
Fylkir
55. mín
InnRúrik Andri Þorfinnsson
ÚtMagnús Þórir Matthíasson
Fylkismenn gera sína aðra skiptingu.
59. mín
Atli Guðnason á frábært skot frá vítateigslínunni sem virðist vera að stefna í bláhornið en Fjalar Þorgeirsson ver frábærlega!
60. mín
Ólafur Páll Snorrason á hér frábært skot að marki en það rétt framhjá. Mikil skemmtun að fylgjast með sóknarleik FH-inga sem leika nú með vindi.
60. mín
Ólafur Páll Snorrason á hér frábært skot að marki en það rétt framhjá. Mikil skemmtun að fylgjast með sóknarleik FH-inga sem leika nú með vindi.
FH
63. mín
MAAAARK!

Ólafur Páll Snorrason

Ólafur Páll Snorrason sem átti skot hér rétt áðan rétt framhjá klárar þetta núna. Leikur á einn varnarmann Fylkismanna inn í teig og á svo gott skot sem endar í markinu. Það er markasúpa hér í Árbænum!
FH
65. mín
InnBjarki Gunnlaugsson
ÚtÁsgeir Gunnar Ásgeirsson
Gamli refurinn Bjarki Gunnlaugs kemur inná. Í kjölfarið eiga Fylkismenn skot í slá eftir hornspyrnu en fréttaritari missti af því hver átti skotið.
Fylkir
70. mín
InnÁsgeir Eyþórsson
ÚtHinrik Atli Smárason
Fylkismenn gera sína síðustu breytingu. Þessi leikur er rosalega skemmtilegur áhorfs en nú versnaði veðrið svo um munar, vonandi heldur samt leikurinn áfram að vera skemmtilegur!
Fylkir
73. mín
MAAAARK!

Jóhann Þórhallsson

Þetta er með ólíkindum. Eins og að horfa á handboltaleik. Varamaðurinn Ásgeir Eyþórsson á þá laglega fyrirgjöf á Jóhann sem tekur vel á móti boltanum og hamrar honum svo í markið!
80. mín
Heldur betur skemmtun hér í Árbænum. Liðin skiptast á að sækja og nú rétt í þessu hefðu FH-ingar mögulega geta fengið vítaspyrnu en dómarinn dæmdi ekkert.
FH
83. mín
InnRóbert Örn Óskarsson
ÚtAtli Guðnason
Maður hefur varla undan að skrá niður færin. Albert Brynjar var nú rétt í þessu að fá dauðafæri einn á móti markmanni en hann skaut framhjá. En FH-ingar gera skiptingu.
FH
87. mín
InnJón Ragnar Jónsson
ÚtTommy Nielsen
Tommy Nielsen fær sína heiðursskiptingu! Jón Jónsson söngvari með meiru kemur inn á í staðin.
93. mín
Flautað til leiksloka í einum allra skemmtilegasta leik sumarsins. FH-ingar taka nú við silfurmedalíu en þeir áttu frábæran endasprett á mótinu. Tommy Nielsen fær einnig flottan blómvönd.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.