Fotbolti.net
Magnús Már Einarsson
Magnús Már Einarsson
Pepsi-deild karla 2016
Þróttarvöllur
Fínar. Blautur völlur
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 3
FH
FH
0 - 136' Steven Lennon0 - 285' Atli Viðar Björnsson0 - 387' Atli Guðnason
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Fimleikafélagið afgreiddi færin af fagmennsku

Hvað réði úrslitum?

Gæðin í FH-liðinu fram á við. Þróttarar fengu sóknir til að komast yfir í fyrri hálfleiknum en nýttu þær ekki og það kom í bakið á þeim. FH-ingar eiga menn sem geta lokað leikjum og það sýndi sig svo sannarlega í þessum leik.

Bestu leikmenn

1. Steven Lennon (FH)

Gerði frábærlega í markinu og var duglegur að ógna bakvið vörn Þróttar. Hefði vel getað skorað annað mark.

2. Davíð Þór Viðarsson (FH)

Stjórnaði sínum mönnum eins og herforingi og átti góða sendingu inn fyrr á Lennon í fyrsta markinu.

Atvikið

Fyrsta mark leiksins. Davíð Þór átti sendingu inn fyrir og móttakan hjá Lennon var frábær. Fram að þessu höfðu Þróttarar ógnað meira en eftir markið náðu FH-ingar betri tökum á leiknum.

Hvað þýða úrslitin?

FH-ingar byrja titilvörnina vel og takturinn varð betri og betri í liðinu eftir því sem á leið leikinn í dag. Þróttarar hefðu kosið aðra byrjun en þeir geta verið ánægðir með frammistöðuna fyrstu 70 mínúturnar og byggt á henni. Síðustu 20 mínúturnar leit liðið hins vegar ekki nógu vel út.

Vondur dagur

Bergsveinn Ólafsson, miðvörður FH, var í talsverðu basli og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Hefði getað fengið á sig víti snemma leiks þegar hann togaði í Emil Atlason í teignum.

Dómarinn - 7

Ágætis leikur hjá Vilhjálmi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.