SKÝRSLAN: Glæsimörk nýliðanna sökktu Blikum
Hvað réði úrslitum?
Breiðablik var betra liðið í kvöld en Þorsteinn Már Ragnarsson, framherji Ólafsvíkinga sem og Ejub Purisevic, þjálfari liðsins, viðurkenndu það.
Víkingarnir skoruðu hins vegar tvö rosaleg mörk sem Blikar gátu lítið gert í.
Víkingarnir skoruðu hins vegar tvö rosaleg mörk sem Blikar gátu lítið gert í.
Bestu leikmenn
1. Kenan Turudija
Bosníumaðurinn var flottur í kvöld. Hann byrjaði leikinn vel og sýndi að hann er góður fótboltamaður. Hann kórónaði síðan góðan leik með stórglæsilegu marki er hann átti skot utan teigs sem fór í slánna og stöngina áður en það hafnaði í markinu.
2. Cristian Martinez Liberato
Vörn Ólafsvíkinga var ekki alltof sannfærandi í kvöld. Klaufaskapur framherja Breiðabliks sem og fínar vörslur frá Spánverjanum eiga stóran þátt í sigrinum.
Atvikið
Bæði mörk Víkinga. Þorsteinn Már átti mjög gott skot í fyrri hálfleik sem Gunnleifur átti ekki möguleika í. Kenan Turudija gerði hins vegar ennþá betur með skotinu sínu sem er lýst vel hér að ofan.
Hvað þýða úrslitin?
Flestir spáðu Blikum sigri í kvöld. Úrslitin gætu þýtt að Blikarnir verða ekki eins sterkir í sumar og menn bjuggust við. Ólafsvíkingar gætu orðið spútník lið sumarsins með svona úrslitum.
Vondur dagur
Höskuldur Gunnlaugsson - Hann er betri en það sem hann sýndi í kvöld. Það kom lítið úr honum og fór hann illa með álitlegar stöður oftar en einu sinni. Honum var síðan kippt útaf þegar 20 mínútur voru eftir.
Dómarinn - 8
Ívar Orri Kristjánsson var með fulla stjórn á leiknum og ekki eitt einasta atvik sem undirritaður man eftir að hann hafi gert illa í. Aðalatriðið var fótboltinn í kvöld og ekki dómgæsla. Vonandi það sem koma skal í sumar.


