Fotbolti.net
Pétur Axel Pétursson
Pepsi-deild karla 2016
Valsvöllur
Fínar. Völlurinn blautur
Valur
Valur
1 - 2
Fjölnir
Fjölnir
0 - 137' Þórir Guðjónsson (víti)0 - 269' Þórir Guðjónsson Guðjón Pétur Lýðsson 80'1 - 2
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
Áhorfendur: 1220
Myndir: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

SKÝRSLAN: Þórir afgreiddi gömlu félagana

Hvað réði úrslitum?

Varnarleikurinn hjá Fjölni var til fyrirmyndar í þessum leik. Þéttir til baka og leyfðu Völsurunum lítið að skapa sér hættuleg færi. Öll varnarlínan hjá Fjölni átti mjög góðan dag í dag og þá helst miðvarðarparið Tobias Frank Salquist Nielsen og Daniel Ivanovski.

Bestu leikmenn

1. Þórir Guðjónsson

Þórir var mjög líflegur í þessum leik og var mjög stór hlekkur í sóknarleik Fjölnismann, sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem að nánast allt fór í gegnum hann. Fljótur leikmaður sem hentaði skyndisóknataktík Fjölnismanna mjög vel í dag.

2. Tobias Frank Salquist Nielsen

Tobias átti mjög góðan dag í hjarta varnar Fjölnis í kvöld sem og félagi hans Daniel Ivanovski. Flottur fyrsti leikur hjá honum í Pepsi deildinni og vonum að þetta sé bara fyrirboði um það sem koma skal hjá honum.

Atvikið

Vítið sem að Fjölnismenn fengu á 37. mínútu. Kale var ekki alveg á tánum og Fjölnismenn komust yfir í leiknum. Þeir gátu þá einbeitt sér að því sem þeir lögðu upp með sem að var að spila góða vörn.

Hvað þýða úrslitin?

Valmenn byrja ekki jafn vel og búist var við af þeim fyrir tímabilið en Fjölnismenn koma skemmtilega á óvart og tóku mjög gott fyrsta skref á þessu tímabili með þessari flottu frammistöðu.

Vondur dagur

Ingvar Þór Kale. Hann gaf Fjölnismönnum vítið sem að kom þeim yfir og gaf þeim yfirhöndina í leiknum í leiðinni.

Dómarinn - 7

Fátt til að setja útá. Dæmdi réttilega víti í fyrri hálfleik og stóð sig bara nokkuð vel. Gerði kannski mistök meðgula spjaldið á Hauk Pál en annars flottur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.