SKÝRSLAN: Extra-auðvelt hjá Fjölni á móti spútnikliði Ólsara
Hvað réði úrslitum?
Frábær frammistaða Fjölnis í vörn og sókn. Þeir voru virkilega þéttir fyrir og sóttu síðan á ógnarhraða á Víkingana. Daprir Víkingar voru undir á öllum sviðum leiksins.
Bestu leikmenn
1. Viðar Ari Jónsson (Fjölni)
Hættulegasti sóknarmaður Fjölnis þrátt fyrir að vera bakvörður. Skoraði stórkostlegt mark og var arkitektinn í öðrum mörkum. Átti í engum vandræðum með Pape á kantinum.
2. Gunnar Már Guðmundsson (Fjölni)
Fyrirferðamikill í sóknarleik Fjölnis. Góður í loftinu, hélt bolta vel og skoraði gott mark í fyrri hálfleik.
Atvikið
Tokic minnkaði muninn niður í 2-1 á 47. mínútu en nokkrum sekúndum síðar skoraði Viðar Örn umtalaða markið sitt og drap þar með vonarneista Víkinga.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnir blandar sér í baráttuna í efri hluta deildarinnar. Víkingar geta þó andað rólega þrátt fyrir vondan leik í dag en þeir eru enn þá í 2. sæti með 10 stig.
Vondur dagur
Allt lið Víkings. Að fá á sig fimm mörk, þar af fjögur í einum hálfleik, er ekki í boði. Frammistaðan í dag var ekki á pari við það Víkingslið sem við höfum séð í upphafi móts.
Dómarinn
Valdimar var flottur í dag.



