SKÝRSLAN: Fyrsti sigur Víkinga í sumar kom í Eyjum
Hvað réði úrslitum?
Víkingar voru áræðnir og ákveðnir í að sækja öll þrjú stigin í dag. Þeir voru frábærir í síðari hálfleik.
Gary John Martin með sinn besta leik í sumar og er kominn á blað, sömuleiðis Viktor Jónsson.

Bestu leikmenn
1. Gary John Martin
Fékk ekki úr miklu að moða í fyrri hálfleiknum og brenndi síðan af víti í byrjun þess síðari í stöðunni 0-0. Margir héldu þá að eyðimerkurganga hans fyrir framan markið myndi halda áfram en annað kom á daginn.
Eftir að hafa brennt af dauðafæri nokkrum mínútum áður komst hann í svipað færi sem hann kláraði vel.
Hann átti svo stoðsendingu á Viktor Jónsson í þriðja marki Víkinga sem gerði algjörlega útum leikinn.

2. Arnþór Ingi Kristinsson
Gerði fyrsta mark Víkinga í leiknum og var duglegur að koma sér í færi. Óhræddur við að fá boltann og átti yfir höfuð afbragðsgóðan leik.
Atvikið
Gary John Martin, 1, 2 & 3 í þessari röð.
1. Brennir af víti í stöðunni 0-0.
2. Fyrsta mark hans í sumar leit dagsins ljós.
3. Átti frábæra stoðsendingu á Viktor Jónsson sem gerði útum leikinn.

Hvað þýða úrslitin?
Víkingar vinna sinn fyrsta leik í sumar og það sannfærandi. Þeir eru því komnir með 5 stig eftir erfitt prógram í byrjun sumars. Miklar væntingar voru bundnar við Gary og Viktor sem núna eru báðir komnir á blað.
Eyjamenn eru enn með 7 stig og hafa þar af 6 á móti Fylki og ÍA, sem virðast eiga í miklum vandræðum í upphafi móts. Alltaf er talað um heimavöllinn sem vígi og það er ljóst að þeir eru ekki sáttir að hafa tapað 0-3 á Hásteinsvelli.

Vondur dagur
ÍBV liðið í heild sinni, ásamt stuðningsmönnum.
Liðinu gekk afar illa að halda bolta og skapa færi. Stuttar, sem og langar sendingar gengu illa. Áttu þó nokkrar fínar skyndisóknir en gátu með engu móti klárað þær. Gæðin á síðasta þriðjungnum vantaði.
844 stuðningsmenn mættu á völlinn en lítið sem ekkert heyrðist úr stúkunni frá upphafi til enda. Leikmenn ÍBV gátu svo varla þakkað þeim fyrir leikinn þar sem stúkan var mestmegnis tóm þegar flautað var til leiksloka.
12ti maðurinn að klikka.

Dómarinn - 9
Lítið fór fyrir Örvari í dag, eins og það á að vera. Leyfði leiknum að fljóta og lítið hægt að setja út á hans frammistöðu.
Spurning með vítið sem Gary Martin vildi fá í fyrri hálfleik en Örvar var vel staðsettur, leit til aðstoðardómarans og virtist vera að þeir væru sammála um að dæma ekkert. Spekingarnir fara líklega yfir þetta atvik.