SKÝRSLAN: Fyrsta markið drap Þrótt
Hvað réði úrslitum?
Það var jafnræði með liðunum þangað til Valur skoraði fyrsta markið. Þá fór allt í steik hjá Þrótti og Valsmenn spiluðu virkilega vel og bættu við tveim fyrir hlé og átti Þróttur ekki séns eftir það.
Bestu leikmenn
1. Nikolaj Hansen
Skoraði mark og lagði upp önnur tvö. Fyrsta skipti sem hann byrjar leik og Daninn leit mjög vel út. Stór, stæðilegur og ógnandi.
2. Sigurður Egill Lárusson
Kláraði mjög vel þegar hann skoraði markið og var ógnandi allan leikinn. Virkilega góður leikmaður þegar hann er í stuði og hefði alveg getað skorað fleiri mörk.
Atvikið
Fyrsta mark Vals. Leikur Þróttara hrundi um leið og Valur komst yfir. Þeir bættu við tveim í viðbót í fyrri hálfleik og voru Þróttarar aldrei líklegir eftir það.
Hvað þýða úrslitin?
Eftir erfiða byrjun eru Valsmenn komnir með tvo sigra í síðustu þrem og líta ágætlega út. Gætu skellt sér í toppbaráttu. Á meðan hafa flestir dæmt Þróttara niður og svona frammistöður hjálpa ekki við að hrista af sér slíkt.
Vondur dagur
Karl Brynjar Björnsson - Gjörsamlega gaf Sigurði Agli tækifæri á að skora þegar Valur komst í 3-0 og endanlega kláraði leikinn. Skelfileg sending til baka sem drap allar vonir Þróttara.
Dómarinn - 7
Guðmundur Ársæll er búinn að fá sinn skerf af gagnrýni í sumar en hann var góður í dag. Engir risa dómar sem hann þurfti að glíma við en gerði það sem hann gerði vel.


