Fotbolti.net
@fotboltinetLárus Ingi Magnússon
Lárus Ingi Magnússon
Inkasso deildin 1. deild karla 2016
Nettóvöllurinn
Suðaustanátt og vætusamt
Keflavík
Keflavík
0 - 0
KA
KA
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Ekki burðugt í Keflavík

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið virtust varfærin í öllum aðgerðum og sköpuðu sér afskaplega fá færi. Sennilega einhver daprasti fótboltaleikur sem topplið hafa boðið uppá. Steindautt jafntefli sanngjörn niðurstaða,

Bestu leikmenn

1. Haraldur Guðmundsson

Stjórnaði liði sínu vel og komst einna best frá leiknum. Gerði gestunum erfitt fyrir í að skapa sér eitthvað og var traustur.

2. Guðmann Þórisson

Var skástur KA manna. Traustur í miðri vörn gestanna og gaf framherjum Keflavíkur enga möguleika inn í teignum.

Atvikið

Archange Nkumu fékk gult spjald eftir einungis 21sek og var kannski heppinn að liturinn var gulur. Erfitt að spila heilan leik á gulu spjaldi.

Hvað þýða úrslitin?

KA menn missa toppsætið til Grindvíkinga og jafntefli gerir verkefnið hjá keflavík mjög erfitt. Úrvalsdeildarsæti að renna þeim úr greipum.

Vondur dagur

Lið Keflavíkur og KA. Drepleiðinlegur fótbolti.

Dómarinn - 6.5

Pétur var ekki vinsæll hjá gestunum, en átti alls ekki slakan leik. Þurfti að gefa gult spjald eftir 21 sek. Engin leikmaður næði þessari einkun út úr þessum leik svo Pétur getur unt glaður við sitt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.