Fotbolti.net
@maggimarMagnús Már Einarsson
Magnús Már Einarsson
Inkasso deildin 1. deild karla 2016
Kórinn
Góðar
HK
HK
0 - 0
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: HK mistókst að slíta sig frá fallbaráttunni

Hvað réði úrslitum?

HK-ingar stjórnuðu ferðinni, sérstaklega í síðari hálfleiknum þar sem þeir sóttu stíft. Fjarðabyggð fékk tvö fín færi til að skora í fyrri hálfleik en í síðari hálfleik var um einstefnu að ræða hjá HK. Vörn Fjarðabyggðar var þétt með miðverðina fremsta í flokki. Það skilaði vængbrotnum gestunum stiginu en nokkra menn vantaði í lið þeirra í dag.

Bestu leikmenn

1. Ingiberg Ólafur Jónsson (Fjarðabyggð)

Blikinn var frábær í vörninni gegn HK. Bjargaði tvívegis marki á ævintýralegan hátt í síðari hálfleiknum.

2. Loic Ondo (Fjarðabyggð)

Ondo hefur átt flott sumar og hann átti góðan leik með Ingiberg í hjarta varnarinnar.

Atvikið

Hákon Ingi Jónsson, framherji HK, var í mikilli baráttu við varnarmenn Fjarðabyggðar í dag. Hann féll í teignum í viðbótartíma og HK-ingar vildu vítaspyrnu. Jóhann Ingi dómari dæmdi hins vegar ekkert við litla hrifningu HK-inga sem mótmæltu grimmt.

Hvað þýða úrslitin?

Fjarðabyggð er í 10. sæti með 16 stig. Huginn er með jafnmörg stig í 11. sæti en Fjarðabyggð er með betri markatölu. HK er síðan í 9. sætinu með 18 stig. HK og Fjarðabyggð eru því bæði í bullandi fallbaráttu í augnablikinu. HK hefði getað stokkið upp í 7. sæti með sigri en það gekk ekki í dag.

Vondur dagur

Hlynur Bjarnason fékk tækifæri í fremstu víglínu Fjarðabyggðar í fjarveru Dimitrov Zelkjo sem var í leikbanni. Hlynur fékk dauðafæri til að skora í fyrri hálfleik en skot hans fór beint á Arnar Frey í markinu. Hlynur hefði getað stimplað sig vel inn með marki en honum brást bogalistin í þetta skipti.

Dómarinn - 6.5

Jóhann Ingi hafði fín tök á leiknum lengst af. Í viðbótartíma vildu HK-ingar fá vítaspyrnu og virtust hafa ýmislegt til síns máls. Jóhann Ingi neitaði hins vegar. Stór ákvörðun.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.