SKÝRSLAN: Grindavík á toppinn og Leiknir ekki á leiðinni upp
Hvað réði úrslitum?
Byrjun Grindvíkinga í seinni hálfleik, þeir skoruðu tvö mörk snemma í honum. Eftir það var þetta mikil brekka fyrir Leiknismenn og Grindavík bætti svo við öðru marki og kláraði leikinn.
Bestu leikmenn
1. Kristijan Jajalo
Hann varði oftar en einu sinni virkilega vel og sá til þess að Grindavík hélt hreinu laki. Kristijan er búinn að vera feikilega góður síðan hann kom til Grindavíkur á miðju tímabili.
2. Alexander Veigar Þórarinsson
Braut ísinn með virkilega góðri afgreiðslu ásamt því að leggja upp þriðja markið. Mark og stoðsending, maður kvartar ekki yfir því.
Atvikið
Byrjunin í seinni hálfleik. Grindavík skoraði tvö í upphafi seinni hálfleiksins og lagði grunn að sigrinum.
Hvað þýða úrslitin?
Grindvíkingar eru komnir á toppinn og þarf eittthvað mikið að gerast til að þeir fari ekki í Pepsi-deildina. Leiknir er aftur á móti nánast úr leik um sæti í deild þeirra bestu.
Vondur dagur
Eiríkur Ingi Magnússon - Þriðja mark Grindavíkur verður að skrifast af einhverju leiti á hann og var hann einfaldlega ekki sannfærandi í hægri bakverðinum í kvöld.
Dómarinn - 7
Sænski dómarinn var heilt yfir góður í dag. Ein og ein ákvörðun sem var ekki upp á 10 en samt sem áður, góður dagur.


