SKÝRSLAN: Hádramatískt jafntefli fyrir norðan
Hvað réði úrslitum?
Þórsarar leiddu lengi vel og fengu nóg af færum til að gera út um leikinn. Þeir hins vegar nýttu þau ekki og hvað gerist þá?
Jú, mótherjarnir refsa. Selfyssingar jöfnuðu í uppbótartíma þegar varamaðurinn Arnór Ingi Gíslason skoraði af harðfylgi.
Bestu leikmenn
1. Arnór Gauti Ragnarsson
Erfitt að velja mann leiksins þar sem að enginn átti frábæran leik. Arnór Gauti var lang besti maður Selfyssinga og var sífellt ógnandi. Mjög góður leikur hjá honum.
2. Gunnar Örvar Stefánsson
Besti leikmaður Þórs á tímabilinu. Vann öll einvígi og var gríðarlega duglegur frammi þangað til hann þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Skoraði mark Þórsara sem var hans 9. mark á tímabilinu, sem gerir hann að næst markahæsta leikmanni deildarinnar.
Ólafur Hrafn Kjartansson átti einnig flottan leik og kom alveg til greina líka.
Atvikið
Auðvelt. Mark gestanna.
Hornspyrna á síðustu sekúndum leiksins. Heimamenn ná ekki að hreinsa og boltinn hrekkur í slánna. Þaðan berst hann á Arnór Inga sem setur hann í netið með viðkomu í varnarmanni. Sumir myndu segja verðskuldað en aðrir ekki.
Hvað þýða úrslitin?
Þetta stig gerir voðalega lítið fyrir bæði lið. Þau sitja áfram í 5. og 6. sæti en eru nú með einu stigi meira en fyrir leik. Tvö lið sem verða ekki með í toppbaráttunni en enda líklega í efri hlutanum.
Vondur dagur
Ætla að setja þetta á Guðmund Ársæl en skrifa um frammistöðu hans hér að neðan.
Af leikmönnum gæti þetta fallið á Jóhann Helga Hannesson. Hann var duglegur eins og alltaf en boltinn bara vill ekki inn hjá honum. Hann klúðraði algjöru dauðafæri í fyrri hálfleik og átti svo skalla í þeim seinni sem fór tvisvar sinnum í þverslánna. Óheppinn, en einhver sagði nú að maður skapaði sína eigin heppni.
Dómarinn - 3,5
Hafði ekki áhrif á úrslit leiksins, en heilt yfir átti Guðmundur ekki góðan dag. Leikurinn fékk nákvæmlega ekki neitt að fljóta og undarlegar aukaspyrnur dæmdar út um allan völl. Menn fengu svo að brjóta hvað eftir annað án þess að fá spjöld.
Ég talaði við þjálfara beggja liða eftir leik og voru þeir báðir sammála um það að frammistaða dómarans hafi ekki verið nægilega góð. Það hallaði ekki á annað liðið en það segir margt þegar bæði lið eru ósátt.



