Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deild karla 2017
Akureyrarvöllur
Toppaðstæður. Ljúft veður á Akureyri.
KA
KA
1 - 1
Stjarnan
Stjarnan
Ásgeir Sigurgeirsson 41'1 - 0Aleksandar Trninic 55'1 - 185' Jósef Kristinn Jósefsson 96' Hólmbert Aron Friðjónsson
Dómari: Erlendur Eiríksson

SKÝRSLAN: Kappið bar fegurðina ofurliði

Hvað réði úrslitum?

Svakalegur baráttuleikur á Akureyri! Fótboltinn sem var spilaður var alls ekki sá flottasti en lætin og fjörið voru til staðar. Rauða spjaldið sem KA fékk á sig breytti leiknum.

Bestu leikmenn

1. Ásgeir Sigurgeirsson - KA

Skoraði mark KA á laglegan hátt og hljóp gríðarlega mikið allan leikinn.

2. Jósef Kristinn Jósefsson - Stjarnan

Skoraði jöfnunarmark Garðbæinga.

Atvikið

Jöfnunarmark Stjörnunnar. Jósef Kristinn Jósefsson náði að skora af harðfylgi. Mikil barátta var í teignum og KA-menn vilja meina að brotið hafi verið á Rajko markverði. Umdeilt en mikilvægt.

Hvað þýða úrslitin?

Stjörnumenn eru í öðru sæti en tókst ekki að nýta tækifærið til að saxa á forskot Vals á toppnum. KA-menn voru ósáttir við að klára leikinn ekki með sigri en þetta var þriðja jafntefli liðsins í röð og fjórði leikurinn í röð án sigurs.

Vondur dagur

Aleksandar Trninic fékk rautt spjald eftir hörkutæklingu á Hilmar Árna. KA-menn voru skyndilega tíu og náðu ekki að halda forystu sinni. Stórt atvik sem gjörbreytti leiknum. Vondur dagur fyrir Trninic.

Dómarinn - 6

Hef oft séð Erlend betri en það verður að taka með í reikninginn að þessi leikur var gríðarlega erfiður að dæma. Allt morandi í hita og fjöri.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.