Fotbolti.net
Hulda Mýrdal
1. deild kvenna
Hertz völlurinn
ÍR
ÍR
0 - 1
Selfoss
Selfoss
0 - 140' Barbára Sól Gísladóttir
Dómari: Jóhannes Elíasson

SKÝRSLAN: Selfoss haggast ekki af toppnum

Hvað réði úrslitum?

Selfoss spilaði fanta góðan fyrri hálfleik og það dugði þeim í dag. Hefðu vel getað skorað fleiri mörk. ÍR spilaði hinsvegar góðan seinni hálfleik en skoruðu ekki mark. Mörk telja í fótboltaleikjum og Selfoss vinnur því í dag.

Bestu leikmenn

1. Alex Alugas

Allar hreyfingar og hraðinn sem hún býr yfir voru á öðru leveli í dag því með því bjó hún til rosalegt pláss í kringum sig. Vann vel og átti hættulegar sendingar. Þetta virtist auðveldara fyrir hana en hinar þó svo að ég held að hún eigi miklu meira inni. Dró þó verulega af henni í seinni hálfleik en skapaði mikið í kringum sig í þeim fyrri. Miða við fjöldann allan af lykil leikmönnum sem Selfoss missti í nám held ég að hún gæti skipt sköpun á lokasprettinum.

2. Lilja Gunnarsdóttir

Lilja má deila þessu með kollegum sínum Bryndísi Maríu og Mykaylin. Alugas var góð en þessar þrjár gerðu henni lífið stundum aðeins krefjandi, sem var ágætt, annars hefði þetta verið martröð fyrir ÍRinga. Lilja og kollegar hennar unnu endalausa skallabolta úr vörninni og þær þrjár eiga það sameiginlegt að kunna meira en að skalla hann í burtu. Eru góðar í fótbolta. Unnu hann margoft og komu boltanum í fæturnar á kollegum sínum. Lilja spilaði mjög góðan leik í 90 mínútur.

Atvikið

Að Alex hafi verið hér inná í dag. Var virkilega ekkert Pepsideildarlið sem hafði not fyrir hana? Hún var best í dag þó að ég held að hún hafi verið í öðrum gír. Skoraði helling af mörkum með Sindra í 1.deildinni og spilaði svo með FH 2016.

Hvað þýða úrslitin?

Selfoss er ennþá í topppsætinu með 32 stig. Á morgun mætast svo liðin í 2. og 3. sæti, Þróttur og HK/Víkingur.
ÍR siglir eins lygnan sjó og það gerist með 18 stig í 5.sæti

Vondur dagur

ÍR liðið hefði eflaust viljað byrjað þennan leik á fyrstu mínútu. Áttu vondan fyrri hálfleik, það var ekkert að frétta. Komu svo út í seinni hálfleik og spiluðu virkilega vel. Það var bara hálfleik of seint í dag.

Dómarinn - 6,78

Þau voru nokkur brotin mjög ljót og mjög augljós sem ég hefði dæmt á. Einnig eru spurningar um vítaspyrnur og rangstöður. En það eru margar ástæður fyrir því að ég er ekki dómari.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.