SKÝRSLAN: Þarf ekki alltaf að vera fallegt
Hvað réði úrslitum?
Kappið bar fegurðina ofurliði í Fossvoginum, eins og við var kannski búist á erfiðum velli sem kemur ekki mjög vel undan vetri og er laus í sér. Fylkismenn voru ömurlegir í fyrri hálfleik og Víkingar skoruðu úr föstu leikatriði. Fylkismenn hresstust eftir hlé en heimamenn náðu að halda hreinu og fagna dýrmætum sigri.
Bestu leikmenn
1. Halldór Smári Sigurðsson - Víkingur
Miðverðir Víkinga voru bestu menn vallarins að mati Tryggva Guðmundssonar, sérfræðings Fótbolta.net. Mikið var um háa bolta og baráttu, leikur sem hentað þeim Halldóri og Gunnlaugi vel. Voru afskaplega öflugir.
Atvikið
Það var vel við hæfi að eina mark leiksins kæmi úr föstu leikatriði. Margir efast um Nikolaj Hansen en hann fer brosandi á koddann í kvöld. Skoraði með skalla eftir hornspyrnu.
Hvað þýða úrslitin?
Það er erfitt að fella stóra dóma eftir eina umferð en miðað við þennan leik er langt sumar framundan hjá Fylki. Liðið gæti átt í vandræðum með markaskorun og það verður að sýna heilsteyptari leik en í kvöld ef það ætlar ekki lóðrétt niður aftur.
Vondur dagur
Þeir sem líta á fótbolta sem listgrein fengu líklega illt í augun í Fossvoginum. Leikurinn var oft tilviljanakenndur og of margar spyrnur út í loftið. Margir leikmenn náðu ekki að sýna bestu hliðar sínar en Hákon Ingi Jónsson fer í vondan dag. Komst ekkert í takt við leikinn, var tekinn af velli í hálfleik og spilamennska Fylkis batnaði mikið við innkomu Jonathan Glenn.
Dómarinn - 6,5
Örfáar ákvarðanir sem ég skildi lítið í en í heildarmyndinni var þetta bara ágætis frammistaða Péturs og hans manna. Engar stórar ákvarðanir rangar.



