SKÝRSLAN: Nýja FH liðið náði í stigin þrjú suður með sjó
Hvað réði úrslitum?
FH er með einn sterkasta leikmannahóp landsins í dag ásamt Valsmönnum. Það sýndi sig í dag. Það vantaði bara gæði hjá Grindavík í dag. Það skilur á milli liðanna. FH hefur mikil gæði í leikmannahópnum og var byrjunarlið liðsins í dag eins og hálfgert B-landslið Íslands þar sem valinn maður var í hverju rúmi.
Bestu leikmenn
1. Steven Lennon
Enginn leikmaður sem bar eitthvað sérstaklega af í leiknum í dag. Steven Lennon fær þó heiðurinn að þessu sinni. Skoraði eina mark leiksins og var það í fínni kantinum. Fallegt slútt í fjær hornið. Alltaf hætta þegar hann er með boltann.
2. Guðmundur Kristjánsson
Sóknarleikur Grindavíkur var ekki upp á marga fiska í dag. Guðmundur Kristjánsson stýrði vörn FH-inga af miklu öryggi og fór fátt í gegnum hann og Pétur Viðarsson. Var í baráttu við Jóhann Helga, framherja Grindavíkur allan leikinn og hafði mun betur í því einvígi.
Atvikið
Á 13. mínútu leiksins fékk Grindavík dauðafæri. Þá var staðan 0-0. Rene Joensen fékk boltann eftir slappa sendingu Péturs Viðarssonar og keyrði á vörnina. Hann hefði getað klárað í fjær hornið framhjá liðsfélaga sínum í færeyska landsliðinu, Gunnari Nielsen en ákvað að renna boltanum út í teig. Þar var William Daniels sem skaut boltanum himinhátt yfir úr dauðafæri. Mark þarna og leikurinn hefði spilast allt öðruvísi.
Hvað þýða úrslitin?
Miklar vangaveltur voru um hvernig hálfgert nýtt FH lið myndi byrja mótið. Sjö nýir leikmenn tóku þátt í leiknum í dag og getur tekið tíma að slípa það saman. Liðið stóð sig hins vegar vel og náði í þrjú stig. Sterk byrjun hjá stórliðinu.
Grindvíkingar þurfa ekkert að leggjast niður og grenja eftir þennan leik. FH er með einn sterkasta leikmannahóp landsins og hefðu þeir gulu alveg getað fengið eitthvað úr þessum leik. Það er bara áfram gakk hjá þeim gulu.

Vondur dagur
Það er framherjaþema í dag.
Will Daniels átti alls ekki góðan leik í dag og klúðraði dauðafæri á 13. mínútu. Gerði lítið sem ekkert í leiknum í dag og tekinn útaf í hálfleik.
Jóhann Helgi Hannesson byrjaði inn á og kom einnig lítið frá honum í leiknum í dag. Hann fékk gula spjaldið í fyrra hálfleik og hefði alveg getað fengið annað spjald en hann braut ansi oft af sér.
Að lokum nefni ég Geoffrey Castillion. Hann sást varla í leiknum. Átti eitt skot en annars kom lítið frá honum. Nái hann að rífa sig í gang getur þetta FH lið verið illviðráðanlegt

Dómarinn - 5
Helgi Mikael átti ágætis leik í dag. Öll vafamál fannst mér hann höndla vel. Set hins vegar spurningamerki við flóðið af gulu spjöldunum í leiknum. Samtals lyfti hann gula spjaldinu níu sinnum í dag og fannst mér það full mikið. Vissulega voru nokkur spjöld réttmæt en önnur hefðu mátt bíða.