Fotbolti.net
Magnús Már Einarsson
Magnús Már Einarsson
Pepsi-deild karla
Egilshöll
Flott umgjörð hjá Fjölni
Fjölnir
Fjölnir
2 - 2
KA
KA
Ægir Jarl Jónasson 2'1 - 01 - 114' Daníel Hafsteinsson Birnir Snær Ingason 17'2 - 12 - 237' Ásgeir Sigurgeirsson
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
Áhorfendur: 1380

SKÝRSLAN: Fjör í fyrri og krampar í seinni

Hvað réði úrslitum?

Fjölnismenn voru öllu beittari heilt yfir en skyndisóknir KA voru skeinuhættar með Ásgeir í farabroddi. Skemmtanagildið í fyrri hálfleik var í botni og sótt á báða bóga. Þetta mikla tempó og þurra loftið í Egilshöll virtist taka mikið af leikmönnum því í síðari hálfleik var lítið í gangi og lokamínúturnar fóru í að huga að mönnum með krampa út um allan völl.

Bestu leikmenn

1. Birnir Snær Ingason (Fjölnir)

Skoraði stórglæsgilegt mark og var oft að stríða varnarmönnum KA. Er mjög hættulegur þegar hann leikur af vinstri kantinum inn á vítateiginn.

2. Ásgeir Sigurgeirsson (KA)

Ógnaði stöðugt með hraða sínum og krafti. Skoraði gott mark og átti þátt í hinu markinu.

Atvikið

Markið hjá Birni Snæ var augnakonfekt. Skot sem fór í stöng og inn og hljóðið þegar boltinn small í stönginni glumdi í Egilhöllinni.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnismenn eru væntanlega svekktir að hafa ekki náð að vinna eftir að hafa komist tvívegis yfir og verið líkegri aðilinn í leiknum. KA menn taka stiginu meira fagnandi miðað við gang leiksins.

Vondur dagur

Cristian Martinez virkaði óöruggur í marki KA í byrjun leiks. Hann vann sig þó inn í leikinn eftir því sem á leið. Spánverjinn var öflugur hjá Víkingi Ólafsvík í fyrra og mikilvægt er fyrir KA að hafa hann í toppstandi.

Dómarinn - 8

Guðmundur Ársæll hafði fín tök á leiknum og hélt línu. Náði að hafa góða stjórn þó að lætin og öskrin hafi verið mikil á köflum, innan sem utan valar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.