Fotbolti.net
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Njarðtaksvöllurinn
Njarðvík
Njarðvík
1 - 2
ÍA
ÍA
0 - 19' Jeppe Løkkegaard Hansen0 - 252' Einar Logi EinarssonÞórður Þorsteinn Þórðarson (sjm) 86'1 - 2

SKÝRSLAN: Gulir og glaðir fara heim í toppsætinu

Hvað réði úrslitum?

Gæðin eru hreinlega bara meiri á Skaganum en það skal samt ekkert taka af Njarðvikingum að þeir gáfu þeim alveg leik og í raun óheppnir að jafna ekki í blálokinn þegar Skagamenn bjarga á línu

Bestu leikmenn

1. Jeppe Hansen

Var virkilega öflugur fyrir Skagamenn, skoraði mark og var alltaf líklegur

2. Pawel Grudzinski

Átti virkilega góðan leik hjá Njarðvík og var virkur á báðum endum vallarins.
Hann og Robert Blakala voru svona jafnbestu menn Njarðvíkur.

Atvikið

Sá ekki hver það var sem bjargaði á línu en eftir hornpyrnu hja heimamönnum í lokin dettur boltinn fyrir Arnór Björnsson sem þrumar boltanum á markið en Skagamenn áttu einn bjargvætt á línunni sem bjargaði 3 stigum í hús Skagameginn

Hvað þýða úrslitin?

Skagamenn skella sér á toppinn og er komnir í bílsstjórasætið fyrir lokakaflann í Inkasso.
Njarðvíkingar eru nú stigi frá falli í 10.sæti

Vondur dagur

Framherjar eru dæmdir út frá mörkum og færum þannig verður þessi vafasami titill að fara til Kenneth Hogg sem sást ekki í þessum leik.

Dómarinn - 6

Ekki frábær og ekki slæmur, þessi klassíski lala frasi á vel við.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.