Fotbolti.net
Silja Runólfsdóttir
Pepsi-deild kvenna
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 1
Selfoss
Selfoss
0 - 120' Allyson Paige Haran
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Rán í Kaplakrikanum

Hvað réði úrslitum?

Dómarinn. Leikurinn hefði geta spilast allt öðruvísi hefði hann dæmt vítið snemma leiks í fyrrihálfleik og FH komist 1-0 yfir. Það er dýrkeypt í dag þar sem FH spilaði betur.

Bestu leikmenn

1. Caitlyn Alyssa Clem

Hún varði erfið skot á mikilvægum tímapunktum þegar FH lá á þeim.

2. Helena Ósk Hálfdánardóttir

Var frábær á kantinum fyrir FH og átti mjög marga flotta bolta inn í teig sem sköpuðu usla.

Atvikið

Ekki vítaspyrnudómurinn. Klár hendi frá mér séð og hefði geta breytt leiknum algjörlega.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að FH, þrátt fyrir að vera betri í dag, sitja enn á botni deildarinnar og erfitt framundan hjá þeim þar sem næstu þrír leikir eru á móti Þór/KA, Val og Stjörnunni. Selfoss er hinsvegar í góðri stöðu og komnar í fimmta sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Verðum við ekki að gefa dómaranum vonda daginn fyrir þessa mikilvægu ákvörðun. Í svona leik þar sem hvert stig skiptir máli er það mjög dýrt að taka eina stóra ranga ákvörðun.

Dómarinn - 6

Hann dæmdi alla jafna vel en krúsjal móment þessi vítaspyrnudómur sem hann dæmdi ekki.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.