SKÝRSLAN: Fyrsta Tap HK í sumar kom gegn Þrótti
Hvað réði úrslitum?
Þó HK væri meira með boltann þá nýttu Þróttur færið sem þurfti að nýta. Varnarleikur þeirra var frábær í dag og þeir unnu fyrir hverjum einasta bolta í þessum leik.
Bestu leikmenn
1. Finnur Tómas Pálmason (Þróttur)
Gæjinn var bara alltaf fyrir, þvílíkur stórleikur sem hann átti. Skallaði frá, tæklaði og skilaði boltanum vel frá sér. Ein stærsta ástæða þess að Þróttur hélt hreinu í dag var frammistaða hans í hafsentnum.
2. Jasper Van Der Heyden (Þróttur)
Geggjaður á kantinum og ógnaði alltaf þegar hann fékk boltann. Mikill hraði sem hann býr yfir og hann notar hann vel, varnarmenn HK lentu oft í vandræðum í einn á einn stöðu
Atvikið
Þróttur bjargar á línu eftir stórbrotna markvörslu frá Arnari. Margir vildu meina að boltinn væri inni en ég bara get ekkert sagt til um það svo tæpt var þetta
Hvað þýða úrslitin?
HK tapar sínum fyrsta leik í sumar og missa efsta sætið til ÍA. Þróttur hinsvegar heldur áfram á góðu skriði og eru komnir með 26 stig í 5. sæti
Vondur dagur
Bjarni Gunnarsson fann sig engan vegin í dag. Hann hefur oft verið hættulegri og átt betri daga. Hann þarf að gera meira í svona baráttuleik til þess að HK nái í stig og skori mörk.
Dómarinn - 7,5
Ívar stóð sig vel



