SKÝRSLAN: Montrétturinn ÍR í bili
Hvað réði úrslitum?
Það voru fá alvöru færi í þessum leik og ÍR nýttu sín betur með marki strax á fjórðu mínútu og þar við sat.
Bestu leikmenn
1. Stefán Þór Pálsson (ÍR)
Þegar Stefán er heill þá er hann svo góður í fótbolta. Stjórnaði öllu spili ÍR upp völlinn og sló varla feilnótu.
2. Ágúst Freyr Hallsson (ÍR)
Var frábær í fyrri hálfleik en í þeim síðari dró af honum og hann tekinn útaf vegna þreytu. Byrjaði leikinn af feykilegum krafti, hljóp úr sér lungun og skoraði sigurmarkið.
Atvikið
Markið eftir fjórar mínútur er atvikið. Leiknismenn sköpuðu sér aldrei neitt dauðafæri og voru ekkert líklegir til að jafna.
Hvað þýða úrslitin?
ÍR lyfta sér upp í 7. sæti með 16 stig, stigi og sæti fyrir ofan Leiknismenn. Liðin eru langt frá því að vera sloppin frá falldraugnum og þurfa bæði að sækja stig í næstu leikjum.
Vondur dagur
Sóknarlína Leiknis þeir Óli Hrannar og Sævar Atli sáust varla í leiknum og þetta eru tveir mikilvægustu menn liðsins. Vörn ÍR var með þá í vasanum allan leikinn.
Dómarinn - 5
Enginn stór dómur sem var vafasamur en Egill dómari leiksins sá sig knúinn til að flauta við hverja snertingu og ekkert flæði komst á leikinn.



