SKÝRSLAN: Fylkir hafði betur í nýliðaslagnum
Hvað réði úrslitum?
Fylkiskonur voru betra liðið í fyrri hálfleik en náðu hvorki að nýta fjölmargar hornspyrnur sínar né skapa sér alvöru færi þrátt fyrir að vera mun meira með boltann. Bitleysið fyrir framan mark Keflavíkur varð til þess að þær náðu ekki að hrista gestina af sér á meðan yfirburðirnir vörðu og Keflavík komst betur inn í leikinn í síðari hálfleik. Það var þó aðeins of seint og aðeins of lítið og úrslitin líklega sanngjörn er heilt er á litið.
Bestu leikmenn
1. Berglind Rós Ágústsdóttir
Fylkiskonur skiptust svolítið á að stela senunni í leiknum og áttu nokkrar mjög góða leikkafla. Berglind Rós átti þó bestu heildarframmistöðuna að mati fréttaritara og var sérstaklega drjúg undir lok leiksins þegar Keflvíkingar voru farnar að gera sig líklegar.
2. Natasha Anasi
Rosalegur varnarjaxl sem stöðvaði ófáar sóknir Fylkiskvenna og var alltaf hættuleg þegar hún bar sjálf upp boltann eða spreytti sig framar á vellinum.
Atvikið
Fyrsta mark leiksins. Áhorfendur voru varla sestir þegar Ída Marín svoleiðis smellhitti boltann og setti hann í slánna og inn. Frábært mark og rosaleg byrjun á fótboltaleik.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir byrjar mótið á sigri. Sækja þrjú mikilvæg stig og sterkt að taka þau gegn hinum nýliðunum.
Vondur dagur
Katrín Hanna átti að gera betur í báðum mörkum Fylkis. Sérstaklega því síðara.
Dómarinn - 7,5
Fínn leikur hjá Helga. Hefði viljað sjá hann leggja línurnar og spjalda Dröfn fyrir heldur gróft brot snemma í leiknum en hann var ekki feiminn við að taka upp spjöldin þegar við átti í síðari hálfleik og stóð sig heilt yfir með prýði.



