SKÝRSLAN: Kristján Guðmunds byrjar á sigri í Garðabænum
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið fengu fá færi en nokkrar fyrirgjafir litu dagsins ljós í leiknum. Stjarnan nýtti sér eina af fyrirgjöfum þeirra í leiknum á meðan lítil hætta skapaðist hjá gestunum.
Bestu leikmenn
1. Jasmín Erla Ingadóttir
Stjórnaði miðjunni hjá Stjörnunni eins og herforingi. Gerði vel bæði með og án bolta. Hún gæti verið mikilvægt lím á miðjunni hjá Stjörnunni í sumar.
2. Birta Guðlaugsdóttir
Einn efnilegasti markvörður landsins. Gerði allt upp á tíu í markinu í kvöld. Það reyndi reyndar ekki mikið á hana á milli stanganna en hún greip fyrirgjafir Selfyssinga vel.
Atvikið
Hólmfríður Magnúsdóttir kom inná rúmlega tíu mínútum fyrir leikslok. Hún gekk í raðir Selfoss rétt fyrir mót. Hún lék síðast í lok september árið 2017. Eftir barnsburð og meiðsli er hún komin aftur á völlinn.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan byrjar mótið vel með sigri á heimavelli gegn liði sem var spáð falli. Selfoss sýndi það hinsvegar í leiknum að þær eru sýnd veiði en ekki gefin.
Vondur dagur
Framherjinn, Darian Elizabeth Powell þarf að sína miklu miklu betri leik en hún sýndi í kvöld. Var tekin útaf eftir rúmlega klukkutíma leik, einu marki undir. Hlutverk hennar hlýtur að vera að skora mörk.
Dómarinn - 8,7
Ásmundur var með allt í teskeið.



