SKÝRSLAN: Spáð neðsta sæti en byrja á sigri
Hvað réði úrslitum?
HK/Víkingur einfaldlega virtist vilja þetta meira. Þær byrjuðu leikinn mun kraftmeiri og settu snemma pressu á KR, sem virtust ekki búast við mikilli mótstöðu.
KR sneru hinsvegar blaðinu við í seinni hálfleik og komu mun hressari til leiks. En það var alveg sama hvað þær reyndu, HK/Víkingur voru ekki tilbúnar að gefa þetta frá sér.
Bestu leikmenn
1. Fatma Kara
Var virkilega öflug í fyrri hálfleik og var allt í öllu í leik HK/Víkings framan af. Lagði meðal annars upp markið og átti þó nokkur færi.
2. Þórhildur Þórhallsdóttir
Erfitt val í svo jöfnum leik en Þórhildur fær þetta. Skoraði flott mark og olli þó nokkrum usla í fyrri hálfleik.
Atvikið
Blaðamannastúkan gat ekki annað en hlegið þegar Karólína Jack sneri sér við og öskraði í átt að áhorfanda: "Þegiðu!"
Áhorfandinn hafði verið óánægður með frammistöðu HK/Víkings í seinni hálfleik og látið þær annarslagið heyra það. Eftir að Karólína missti boltann klaufalega út af í eitt skiptið fékk hún glósu frá áhorfandanum með þessum afleiðingum. Hann hugsar sig eflaust tvisvar um áður en hann kommentar næst á frammistöðu Karólínu!
Hvað þýða úrslitin?
HK/Víkingur sóttu strax 3 stig í fyrsta leik sem er dýrmætt fyrir liðið sem er spáð fallsæti. KR verða hinsvegar að sýna meira ætli þær að koma sér í topp hluta deildarinnar og burt frá fallbaráttunni.
Vondur dagur
KR virðast enn og aftur ætla að vera óheppnar með meiðsli. Misstu tvo sterka leikmenn útaf.
Hlíf hefur verið að glíma við smávægileg meiðsli en vonandi að Betsy sé ekki alvarlega meidd því KR meiga ekki við því að missa fleiri á meiðslalistann. Fyrir eru báðir markmennirnir meiddir og Katrín Ómars gat einnig ekki tekið þátt í leiknum í kvöld.
Dómarinn - 7
Engar stórar ákvarðanir sem hann þurfti að taka og virtist bara standa sig ágætlega.



