Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Mjólkurbikar karla
Meistaravellir
Mjög blautt en laus við vind svo það strax skánar við það
KR
KR
3 - 0
Njarðvík
Njarðvík
Ægir Jarl Jónasson 21'1 - 0Ægir Jarl Jónasson 25'2 - 0Ástbjörn Þórðarson 63'3 - 0
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson

SKÝRSLAN: KR sýndi mátt sinn á Meistaravöllum

Hvað réði úrslitum?

Gæðin í KR báru Njarðvíkinga hreinlega bara ofurliði. Njarðvíkingar börðust samt vel og geta vel við unað með sína framistöðu í kvöld.

Bestu leikmenn

1. Ægir Jarl Jónasson

Skoraði 2 og var nálægt að ná inn þriðja. Virkilega öflugur leikur hjá piltinum.

2. Ástbjörn Þórðarson

Ætla gefa Ástbirni þetta, flestar sóknaraðgerðir KR fóru í gegnum hans væng og hann auk þess duglegur að vinna horn og innköst - skemmir heldur ekki að hann hafi rekið smiðshöggið á leikinn

Atvikið

Fyrsta markið. Klafs í teignum sem endar með að Ægir Jarl skorar og það virðist slá Njarðvíkinga svolítið út af laginu en þeir voru búnir að vega ógna aðeins áður en þeir fengu svo annað mark á sig stuttu seinna sem fór svolítið með þetta fyrir suðurnesjapeyjana.

Hvað þýða úrslitin?

KR verður í pottinum þegar dregið verður í undanúrslit í Mjólkurbikarnum.

Vondur dagur

Ætla að veita þessum lið undanþágu og segja enginn. Njarðvíkingar börðust hetjulega í þessum leik en KR var bara númeri of stórt. Enginn sem átti slakan leik í dag.

Dómarinn - 9

Frábærlega vel dæmdur leikur!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.