Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Nettóvöllurinn
Rignir duglega en annars þokkalegustu aðstæður
Keflavík
Keflavík
1 - 3
Leiknir R.
Leiknir R.
0 - 147' Vuk Oskar Dimitrijevic 0 - 253' Sævar Atli Magnússon Adolf Mtasingwa Bitegeko 61'1 - 21 - 365' Sólon Breki Leifsson
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson

SKÝRSLAN: Leiknismenn refsuðu lánlausum Keflvíkingum

Hvað réði úrslitum?

Leiknismenn gripu gæsina þegar hún gafst. Klaufaleg og barnaleg mistök í vörn Keflavíkur gáfu tvö dauðafæri sem góðir Leiknismenn nýttu sér og refsuðu kæruleysi heimamanna.

Bestu leikmenn

1. Vuk Oskar Dimitrijevic

Virkilega spennandi leikmaður sem er leikinn með knöttinn og mjög ógnandi fram á við, Skoraði gott mark og lék sér á köflum að varnarmönnum Keflavíkur.

2. Sólon Breki Leifsson

Vinnuhestur í framlínu Leiknis, Skoraði frábært mark þegar hann tók alla vörn Keflavíkur úr sambandi og klobbaði Sindra í marki Keflavíkur með markinu sem gulltryggði sigur Leiknis.

Atvikið

Annað mark Leiknis var skrautlegt. Skelfileg mistök Ísaks í vörn Keflavíkur senda Sævar Atla í gegn og hann þakkaði pent fyrir sig með góðu marki.

Hvað þýða úrslitin?

Leiknismenn hoppa uppfyrir Keflavík með 15 stig í 4.sæti, Keflavík fellur svo um eitt og situr í því 5 með 14 stig. Pakkinn þéttist svo enn á toppnum og Leiknir er aðeins 2 stigum frá toppliðum Fram og Gróttu.

Vondur dagur

Varnarlína Keflavíkur var mistæk í dag og reyndist það dýrt. Sérstaklega vill ég nefna Ísak fyrirliða Keflavíkur sem gerði sig sekan um afar klaufaleg mistök sem kostuðu mark. Rándýrt og afar klaufalegt hjá jafn góðum leikmanni og hann er.

Dómarinn - 6

Lala leikur hjá Agli, Hélt sinni línu vel en leyfði kannski á köflum of mikið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.