Fotbolti.net
@YearmanEagleÁrmann Örn Guðbjörnsson
Mjólkurbikar karla
Kaplakrikavöllur
Rigning og kalt
FH
FH
7 - 1
Grindavík
Grindavík
Hjörtur Logi Valgarðsson 19'1 - 0Steven Lennon 25'2 - 0Steven Lennon (víti) 31'3 - 0Halldór Orri Björnsson 33'4 - 0Steven Lennon 44'5 - 0Pétur Viðarsson 65'6 - 06 - 183' Marc McauslandBrynjar Ásgeir Guðmundsson 90'7 - 1
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Niðurlæging í Kaplakrika

Hvað réði úrslitum?

Afleitur varnarleikur Grindvíkinga varð þeim að falli í þessum leik. FH valtaði yfir þá og voru í raun óheppnir að gera ekki fleiri mörk

Bestu leikmenn

1. Steven Lennon

Lennon sýndi hversu góður hann getur verið í dag. 3 mörk og stoðsending

2. Jónatan Ingi Jónsson

Var magnaður í kvöld. Sást vel á honum í seinni hálfleik að hann vildi skora.

Atvikið

Rauða spjaldið og annað mark FH gætu verið talin crucial atriði í leiknum þar sem allt breyttist við bæði atvik. Markið hjá Halldóri Árna samt var það sturlað að það fær þennan reit frá mér

Hvað þýða úrslitin?

Grindavík er úr leik í bikarnum. FH eru komnir í undanúrslit ásamt Víkingum og KR. Leikur Breiðabliks og Fylkis er sem stendur í framlengingu

Vondur dagur

Vladimir Tufegdzic væri auðveld bráð eftir rauða spjaldið sem og allt Grindavíkurliðið í rauninni. Túfa var ekkert slæmur framanaf og var óheppinn að fá boltann í höndina í vítinu þar sem skotið kom af stuttu færi. Elias Tamburini var í tómu rugli að reyna að dekka Jónatan Inga í fyrri hálfleiknum og skapaðist alltaf hætta þegar Jónatan tók hann á.

Dómarinn - 9

Frábærlega dæmt. Lítið sem hann þurfti að dæma en gerði rétt að dæma vítaspyrnu og rauða spjaldið aldrei spurning þegar útileikmaður ver á línu með höninni
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.