SKÝRSLAN: Grótta á toppinn
Hvað réði úrslitum?
Grótta nýtti sín færi og voru heilt yfir hættulegri. Aftureldingu tókst ekki að nýta sína góðu kafla nægilega vel og því fór sem fór.
Bestu leikmenn
1. Pétur Theódór Árnason
Var búinn að fá nokkur færi fyrr í leiknum en hélt haus og kláraði leikinn á lokamínútunum með tveimur mörkum. Virkilega yfirvegaður og kláraði í bæði skiptin vel. Flottur leikur heilt yfir.
2. Kristófer Orri Pétursson
Kristófer var virkilega ógnandi allan leikinn og þá sérstaklega í fyrri háfleik. Óheppinn að skora ekki.
Atvikið
Ondo skallar í stöng í stöðunni 0-1 fyrir gestina. Hefðum fengið allt aðrar lokamínútur ef boltinn hefði endað inni þarna. En það er ekkert ef og hefði í boltanum. Grótta kláraði leikinn að lokum örugglega.
Hvað þýða úrslitin?
Gróttumenn eru komnir á toppinn í Inkasso-deildinni og fara sáttir heim á Seltjarnarnesið. Afturelding er aftur á móti enn í 10.sæti og varnaleikurinn er áhyggjuefni í Mosfellsbæ.
Vondur dagur
Andri Már Hermannsson missti Kristófer sem og aðra sóknarmenn Gróttu oft bakvið sig í fyrri hálfleik og við það skapaðist hætta. Grótta keyrði mikið upp vinstri kantinn í leiknum. Þessi kraftmikli hægri bakvörður átti heilt yfir ekki góðan dag.
Dómarinn - 8
Guðgeir var flottur í dag. Ekkert út á hann að setja.



