SKÝRSLAN: Valur Íslandsmeistari Pepsí Max-deildar kvenna eftir sýningu á Origovellinum
Hvað réði úrslitum?
Gæði Vals réði þessu. Það sást frá upphafslautinu í hvað stefndi. Valsstúlkur komust á bragðið strax á 6.mínútu leiksins og bættu svo við öðru undir lok fyrrihálfleiks og síðari hálfleikurinn spilaðist á mark Tindastóls og hefði sigurinn getað orðið stærri.
Bestu leikmenn
1. Dóra María Lárusdóttir (Valur)
Frábær inn á miðjunni hjá Val í kvöld og lagði meðal annars upp þriðja markið á Mist Edvardsdóttur
2. Fanndís Friðriksdóttir (Valur)
Kom inn á sem varmaður á 60 mínútu leiksins og var frábær. Tók Fanndísi 30 mínútur að skora tvö mörk og voru þau bæði mjög góð.
Atvikið
Loka flautið - Sveinn Arnarsson dómari leiksins flautaði til leiksloka á Origovellinum og Valsstúlkur fögnuðu sínum tólfta Íslandsmeistarartitli - Til hamingju Valur
Hvað þýða úrslitin?
Valsstúlkur tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn og er þetta tólfti titill liðsins. Tindastóll situr enþá á botni deildarinnar með 11 stig og er liðið í harðri baráttu um að halda sæti sínu í deildinni.
Vondur dagur
Amber Kristin Michel - Amber markvörður Tindastóls fékk á sig sex mörk í kvöld og kvöld sem hún vill líklega gleyma sem fyrst.
Dómarinn - 10
Sveinn Arnarsson og hans menn gerðu allt rétt í kvöld.



