SKÝRSLAN: Skagamenn i vondum málum
Hvað réði úrslitum?
Spennusstig? Gæðamunur? Það eru mörg atriði sem koma til greina en einfaldast er að segja að KR liðið spilaði bara mun betur við krefjandi aðstæður í dag. Voru skeinuhættir fram á við og traustir og þéttir til baka sem landaði þremur stigum í hús.
Bestu leikmenn
1. Kjartan Henry Finnbogason
Mark og fyrirgjöf sem skilar marki. Fílaði sig vel í smá fæting við miðverði Skagamanna og átti heilt yfir góðan leik.
2. Stefán Árni Geirsson
Skagamenn réðu lítið við hann og á öðrum degi hefði hann líklega farið illa með þá. Annars var KRliðið mjög jafnt í sinni frammistöðu heilt yfir og enginn einn sem skein framyfir aðra. En Stefán fær þetta fyrir stoðsendingu og lipra takta almennt.
Atvikið
Aukaspyrna Kennie Chopart sem lét vaða af um 22 metra færi. Boltinn smellur í slánni og niður og þaðan út. Hvernig boltinn skoppaði plús sjónarhorn myndavélar Stöðvar 2 sport sannfærir mig um það að boltinn hafi verið inni. Skipti þó engu er upp var staðið.
Hvað þýða úrslitin?
Heimamenn eru í skítamálum á botninum og styttist í að ekkert nema kraftaverk bjargi þeim.
KR á sama tíma bara sátt við stöðuna í fjórða sæti deildarinnar og gætu með smá lukku endað i Evrópu.
KR á sama tíma bara sátt við stöðuna í fjórða sæti deildarinnar og gætu með smá lukku endað i Evrópu.
Vondur dagur
Guðmundur Tyrfingsson átti erfiðan dag sem bakvörður í dag. Selfyssingurinn sem hefur líklega verið í kringum rútur allt sitt líf hefði líklega gengið betur að stöðva eina slíka með handafli heldur en að berjast við sér mun líkamlega sterkari menn eins og Kjartan Henry og Kristján Flóka. Er þó ungur enn og hefur nægan tíma að bæta á sig massa.
Dómarinn - 7
Stóra atvikið er hvort boltinn hafi verið inni eða ekki. Einar hafði lítið um það að segja en annars dæmdi hann leikinn vel.


