Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Pepsi Max-deild karla
Kaplakrikavöllur
Skýjað og smá gola
FH
FH
0 - 0
Keflavík
Keflavík
Dómari: Erlendur Eiríksson
Áhorfendur: 317
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Vörn án varnarmanna hélt hreinu gegn FH

Hvað réði úrslitum?

Vegna meiðsla og leikbanns þurfti Keflavík að stilla upp mjög óhefðbundinni varnarlínu og með menn að spila út úr stöðum. Púsluspil þjálfarateymisins gekk hinsvegar vel upp og mun meiri liðsandi var til staðar en í 0-5 tapi gegn sama liði síðasta laugardag.

Bestu leikmenn

1. Ástbjörn Þórðarson - Keflavík

Þessi fjölhæfi leikmaður spilaði eins og kóngur í hjarta varnarinnar í kvöld. Hann og Frans Elvarsson náðu feikilega vel saman.

2. Eggert Gunnþór Jónsson - FH

Flottur í miðverði FH-inga og komst nálægt því að skora stórglæsilegt mark þegar hann þrumaði í þverslána í seinni hálfleik.

Atvikið

Marley Blair fékk dauðafæri til að skora fyrir Keflavík í seinni hálfleiknum en setti boltann framhjá. Það vantar oft hjá honum að ná að reka smiðshöggið.

Hvað þýða úrslitin?

FH siglir um lygnan sjó og það sást á liðinu í kvöld að það hafði ekki að miklu að keppa. Þetta útivallarstig gæti hinsvegar reynst gulls ígildi fyrir Keflavík í lokin, liðið er nú fjórum stigum fyrir ofan fallsætin.

Vondur dagur

Morten Beck fór illa með góðar stöður og Matthías Vilhjálmsson á að sýna meira. Jónatan Ingi var sá eini af fremstu mönnum FH sem var að skapa alvöru usla.

Dómarinn - 8,5

Erlendur Eiríksson og hans aðstoðarmenn voru með allt á kristaltæru í kvöld. Tómas Meyer, yfirmaður gæslusviðs í Kaplakrika, var ljómandi ánægður með þá og það eru alvöru meðmæli.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.