Fotbolti.net
Besta deildin
KA
KA
Besta-deild karla - Efri hluti
Greifavöllurinn
-1° og lítill vindur - Góðar aðstæður fyrir fótbolta.
2 - 0
Valur
Valur
Hallgrímur Mar Steingrímsson 32'1 - 0Hallgrímur Mar Steingrímsson 40'2 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: KA tryggði sér 2. sætið í lokumferðinni

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var frekar jafn þangað til Valsmenn urðu manni færri en eftir það komust KA í 2-0. Seinni hálfleikurinn fór mjög rólega af stað og voru Valsmenn aldrei líklegir til að koma sér aftur inn í þetta þótt þeir hafi verið betra liðið oft á tíðum.

Bestu leikmenn

1. Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)

Hallgrímur skoraði bæði mörk KA í dag. Hann stóð sig vel í dag og hefði jafnvel getað náð þrennunni, einnig skapaði hann þó nokkur færi fyrir liðsfélaga sína.

2. Jakob Snær Árnason (KA)

Þrátt fyrir að hafa farið útaf á 63 mínútu átti Jakob góðan fyrri hálfleik. Hann og Hrannar áttu marga góða spil kafla upp hægri vænginn og voru Valsmenn oft í veseni með þá.

Atvikið

Rauða spjaldið sem Lasse Petry fékk snéri leiknum við. Valsmenn höfðu þangað til verið betra liðið á vellinum en eftir að þetta atvik átti sér stað snérist leikurinn KA í hag.

Hvað þýða úrslitin?

KA menn tryggðu sér 2. sætið með sigrinum og enda tímabilið á 53 stigum. Valur enda tímabilið á 35 stigum og eru þá í rauninni í sjöunda sæti í lok tímabils.

Vondur dagur

Lasse Petry átti ekki góðan leik þar sem hann fékk rautt spjald eftir aðeins 29 mínútna leik og gaf KA mönnum víti. Spjaldið fékk hann eftir að KA unnu boltann inni í teig Valsmanna og spiliðu sig framhjá Frederick Schram. Þegar skotið loksins kom stökk Lassa fyrir boltann og varði hann með höndunum. Þetta var eins og augljóst og það verður en samt sem áður reyndu Valsmenn og Lasse þá sérstaklega að mótmæla dómnum.

Dómarinn - 8

Heilt yfir dæmdi Gunnar Oddur vel í dag. Það var þó eitt atvik, þar sem Birkir Heimisson átti glórulausa tæklingu á Þorra Mar. KA menn vildu fá annað rautt spjald og hefði alveg verið hægt að færa rök fyrir því. Gunnar lét þó gula spjaldið nægja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.