Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
FH
FH
Besta-deild karla - Neðri hluti
Kaplakrikavöllur
Svalt og haustlegt um að litast. Skal engan undra í lok október.
1 - 2
ÍA
ÍA
0 - 140' Gísli Laxdal UnnarssonÚlfur Ágúst Björnsson 45'1 - 11 - 293' Eyþór Aron Wöhler
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Skaginn kvaddi með sigri

Hvað réði úrslitum?

Stórt er spurt. XG segir líklega að FH hafi átt að skora fleiri mörk því þeir fengu svo sannarlega færin til þess. Inn vildi boltinn þó ekki og fyrir það refsuðu gestirnir frá Akranesi með flautumarki. Svo sem lítið annað um það að segja en þó gott fyrir ÍA að kveðja Bestu deildina á jákvæðum nótum.

Bestu leikmenn

1. Eyþór Aron Wöhler

Stoðsending í fyrsta marki leiksins og skoraði svo það seinna eins og sannur framherji þegar hann eltir boltann og uppsker þegar frákast berst til hans eftir varið skot. Fínasti leikur á köflum hjá Eyþóri.

2. Oliver Heiðarsson

Kom sér oft í fínar stöður úti til hægri en vantaði oftar en ekki samherja í boxið til að taka við boltanum frá honum. Gerði sitt þó vel að mestu.

Atvikið

Skrifum það á sigurmark ÍA með síðustu spyrnu leiksins. Hefði auðvitað verið skemmtilegra að það hefði breytt einhverju en fínn endir á tímabilinu fyrir gestina.

Hvað þýða úrslitin?

Liðin enda bæði með 25 stig en ÍA fellur á mun verri markatölu. Ekki flókið það.

Vondur dagur

Baldur Logi Guðlaugsson fékk nokkur úrvalsfæri til að skora úr í dag en brást bogalistinn. Sama má reyndar segja um nokkra samherja hans en það kom ekki að sök

Dómarinn - 7

Fínn leikur hjá Vilhjálmi. Engin risaatvik til að tala um og bara nokkuð þægilegt verk.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.