Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetEyþór Daði Kjartansson
Besta-deild kvenna
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
0 - 1
Þór/KA
Þór/KA
0 - 120' Sandra María Jessen Holly Taylor Oneill 41'
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson

SKÝRSLAN: Þór/KA sóttu sigur til Vestmannaeyja.

Hvað réði úrslitum?

Sandra María og Hulda Ósk voru að skapa færi fyrir hvor aðra allan leikinn og ÍBV réði ekkert við þær.

Bestu leikmenn

1. Sandra María Jessen

Lang besti leikmaður vallarins. Ekki flóknara en það

2. Hulda Ósk Jónsdóttir

Eyjakonur áttu ekki roð í hraðan hennar og hún skapaði fullt af færum fyrir Söndru. Óheppin að skora ekki í dag.

Atvikið

Þegar Agnes Birta brýtur á Olgu sem er nánast komin ein í gegn. Tekur á sig spjaldið og aukaspyrnu, virkilega ''professional'' brot. Leiðinlegt að setja rauða spjaldið hérna inn.

Hvað þýða úrslitin?

Þór/KA er nú með 6 stig en Eyjakonur búnar að tapa 2 leikjum í röð.

Vondur dagur

Holly Oneill fékk rautt spjald í fyrri hálfleik. Trúi ekki að þetta hafi verið viljandi olnbogaskot en gerði verkefni enn erfiðara fyrir Eyjakonur.

Dómarinn - 8

Fínasta frammistaða. Hefði átt að gefa sér smá tíma að gefa Holly rautt spjald, leit verr út að gefa henni gult og síðan rautt eftir á. En vel gert hjá aðstoðardómaranum að hafa séð þetta. Þeir létu síðan stúkuna og bekk Eyjakvenna að hafa áhrif á dómgæsluna og stóðu sig mjög vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.