Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta-deild karla
Kórinn
HK
HK
1 - 2
KA
KA
Marciano Aziz 23'1 - 01 - 162' Ásgeir Sigurgeirsson 1 - 276' Ásgeir Sigurgeirsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Ásgeir Sigurgeirs slökkti í HK

Hvað réði úrslitum?

Svo sannarlega leikur tveggja hálfleika. HK voru betri aðilinn í þeim fyrri en KA var betri í þeim síðari. Gæði KA voru það sem skildu liðin af. KA áttu ás í ermi með Ásgeiri á bekknum.

Bestu leikmenn

1. Ásgeir Sigurgeirsson

Þvílík innkoma! Þvílíkt sigurmark! Var allt það sem KA vantaði í fyrri hálfleik.

2. Hallgrímur Mar Steingrímsson

Var traustur eins og oft áður. Fór oft illa með menn og lagði upp jöfnunarmarkið með frábærri pressu.

Atvikið

Annað mark KA. Nýbúinn að fá þrumu upp í rifbeinin og útaf, HK tekur innkastið og Ásgeir vinnur boltann og leggur svo bara af stað í þetta litla ferðalag frá sínum eigin vallarhelmingi sem endaði með frábæru marki.

Hvað þýða úrslitin?

KA kemst uppfyrir HK um stundarsakir hið minnsta í 3.sæti deildarinnar. HK fellur um eitt sæti.

Vondur dagur

Þorri Mar Þórisson var í smá vandræðum. Virkaði full ragur og eins og hann væri ekki alveg 100%. Birgir Baldvins var líka í veseni í fyrri hálfleik en þegar leið á leikinn vann hann sig vel inn í leikinn. Varnarlína HK í seinna marki Ásgeirs var líka í bullinu.

Dómarinn - 8

Rock solid. Var ekki að falla í neinar gildrur og leyfði leiknum að fljóta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.