SKÝRSLAN: Niðurlæging í baráttunni um höfuðborgina
Hvað réði úrslitum?
Valsarar eru bara með mun meiri gæði í sínu liði en KR þessa stundina; þeir eru með mun meira sjálfstraust og eru mun betra fótboltalið.
Bestu leikmenn
1. Birkir Már Sævarsson (Valur)
Það er ótrúlegt að þessi maður sé að verða fertugur seint á næsta ári. Stoðsendingaþrenna hjá honum í dag.
2. Aron Jóhannsson (Valur)
Er að finna sig virkilega vel í nýju hlutverki á miðsvæðinu. Átti góðan leik í dag og var á skotskónum.
Atvikið
Þriðja markið sem Aron skoraði í dag drap leikinn algjörlega. Hér verður einnig að nefna atvik sem átti sér stað í stöðunni 2-0 þegar Finnur Tómas handlék boltann innan teigs og rændi marki. Það hefði átt að vera vítaspyrna og rautt spjald en í staðinn dæmdi Ívar Orri hornspyrnu. Hefði getað verið dýrkeypt.
Hvað þýða úrslitin?
Valur skellir sér á toppinn með 15 stig en KR er í tíunda sæti með fjögur stig, og verður mögulega í fallsæti eftir þessa umferð. Þessi úrslit þýða það líka að það verður hávær umræða um stöðuna hjá KR. Hefur einhvern tímann verið heitara undir Rúnari Kristinssyni en akkúrat núna?
Vondur dagur
Hvar á maður að byrja? Það er í raun hægt að setja allt KR-liðið hérna en ég ætla að nefna þrennt hérna; Atli Sigurjónsson, Finnur Tómas Pálmason og miðjan hjá KR í heild sinni. Atli er að byrja þetta tímabil hörmulega, Finnur Tómas var virkilega slakur í dag eins og hann hefur verið í langan tíma og miðjan hjá KR var virkilega slök. Olav Öby lítur alls ekki vel út og þá var Ægir Jarl mjög slakur.
Dómarinn - 4
Ívar Orri og hans teymi klikkar rosalega í fyrri hálfleiknum þegar Valur átti að fá víti og Finnur Tómas átti að fá rautt. Sem betur fer fyrir hann þá hafði það ekki mikil áhrif á leikinn en þetta hefði getað orðið ansi dýrt fyrir Val. Fyrir utan þessi risastóru mistök þá fannst mér teymið dæma þetta ágætlega en ég dreg þá mikið niður fyrir þetta atvik. Það má ekki klikka á svona.




