SKÝRSLAN: FH sótti meira en tókst ekki að taka öll stigin
Hvað réði úrslitum?
FH átti fleiri sóknir og tilraunir en náði ekki að skora fleiri mörk, í heildina fengu liðin örugglega svipað mörg virkilega góð færi. Tindastóll reiddi sig mikið á Murielle frammi og hún átti að dreifa boltanum til hliðar eða taka sjálf af skarið. Það gekk svona ágætlega en hefði mátt takast oftar. Lokamínútur venjulegs leiktíma voru hörkuskemmtun, sótt endana á milli og gladdi það augað. Ég held að FH sé liðið sem sé svekktara með úrslitin.
Bestu leikmenn
1. Gwendolyn Mummert
Átti virkilega góðan leik, vel staðsett og ófáar sóknir FH sem stoppuðu á henni.
2. Mackenzie George
Síógnandi og aldrei friður fyrir varnarmenn andstæðinganna. Krækti í vítið og var líkleg. Monica og Aldísirnar voru einnig góðar.
Atvikið
Stoðsendingin og afgreiðslan í marki Tindastóls fær þetta. Frábær sending frá Murielle og virkilega vel gert hjá Aldísi Maríu. Monica fær svo 'shoutout' fyrir vörsluna gegn Söru Montoro í seinni.
Hvað þýða úrslitin?
Stig á hvort lið, Tindastóll kominn með tvö stig og FH fær sitt fyrsta stig í deildinni og kemst upp úr botnsætinu í bili hið minnsta.
Vondur dagur
Þó að María Dögg hafi gerst brotleg þegar vítaspyrnan var dæmd fannst mér hún ekkert eiga neinn hrikalegan dag. Hún og Rakel Sjöfn, sem var nær ósýnileg í leiknum, fá tilnefningu en ætla ekki að skrifa upp á að þær hafi verið eitthvað mjög lélegar.
Dómarinn - 8
Fínasta dómgæsla, vítið hárrétt og leikstjórnin góð.




