SKÝRSLAN: Flugeldasýning í boði Fjölnis í Egilshöll
Hvað réði úrslitum?
Fjölnismenn voru yfir á öllum sviðum í kvöld þrátt fyrir nokkur áhlaup Þórsara þá gerðu heimamenn vel í að refsa gestunum í kvöld. Skoruðu þrjú mörk í fyrri hálfleik og stigu Fjölnismenn ekkert af bernsíngjöfinni og kláruðu leikinn með þremur mörkum í síðari hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Axel Freyr Harðason (Fjölnir)
Axel Freyr var gjörsamlega frábær í kvöld og var allt í öllu í sóknarleik Fjölnis í kvöld. Skoraði tvö og lagði upp. Frábær dagur á skrifstofunni hjá Axeli í kvöld.
2. Mánu Austmann Hilmarsson (Fjölnir)
Máni skoraði einnig tvö mörk líkt á Axel og var frábær í sóknarleik liðsins. Sýndi þvílík gæði í slúttum sínum og heilt yfir í leiknum.
Atvikið
Fyrsta markið sem kveikti í Fjölnismönnum - Reynir Haraldsson fékk boltann upp vinstri vænginn og fann Mána Austmann í lappir fyrir utan teig. Máni tók við honum og smellti honum í hægra hornið. Óverjandi fyrir Aron í marki Þórsara.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnismenn eru á toppi deildarinnar með 10 stig eftir fyrstu fjórar umferðir deildarinnar. Þórsarar eru með sex stig í fimmta sæti deildarinnar.
Vondur dagur
Þórsliðið í heild - Þórsliðið var heilt yfir ekki á deginum sínum í dag og létu Fjölnismenn fara heldur betur ílla með sig.
Dómarinn - 6.5
Ívar Orri og hans menn dæmdu þennan leik bara nokkuð vel í þægilegum leik að dæma en það var ekkert stórt atvik í leiknum sem þeir teymið þurfti að taka á.



