SKÝRSLAN: Afturelding með sigur eftir hvass miklan leik
Hvað réði úrslitum?
Afturelding nýttu það miklu betur að hafa vindinn í baki sínu heldur en Grótta gerði. Grótta voru með allt of háar sendingar með vindi sem gerði það að boltinn fauk bara útaf á meðan hann var í loftinu. Þessi vindur hafði mikil áhrif á leikinn og það hjálpaði að spila með vindinum í dag.
Bestu leikmenn
1. Arnór Gauti Ragnarsson
Skoraði mark og átti flottan leik í dag. Var mjög líflegur á vellinum í erfiðum aðstæðum.
2. Yevgen Galchuk
Þrátt fyrir að hafa fengið á sig 2 mörk, stóð Yevgen sig vel í marki Aftureldings og bjargaði hann stigum fyrir Afturelding
Atvikið
Aðstæður leiksins voru erfiðar fyrir leikmenn og fauk boltinn mikið útaf í leiknum. Það var mikið verið að leggja upp færi, en þá fór oftast boltinn bara einhvert.
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding heldur efsta sæti deildarinnar með 10 stig, á meðan Grótta heldur sér í 7. sæti í Lengjudeildinni í bili með 3 stig.
Vondur dagur
Það vonda við þennan leik var að hann var spilaður í svona erfiðum aðstæðum og var leikurinn alls ekki eðlilegur. Leikmenn náði ekki að spila á milli sín almennilega vegna þess að þeir vissu aldrei hvert boltinn myndi fjúka.
Dómarinn - 5
Ágætlega dæmdur leikur í mjög erfiðum aðstæðum. Sá nokkur atvik sem gætu hafa verið dæmt betur og svo bætti dómarinn við aðeins of margar mínútur við til uppbótar.



