Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Lengjudeild karla
Rafholtsvöllurinn
Hefðbundið rok á annað markið en þurrt að kalla eins og er
Njarðvík
Njarðvík
3 - 1
Þróttur R.
Þróttur R.
Oliver James Kelaart Torres 27'1 - 0Rafael Alexandre Romao Victor (víti) 30'2 - 02 - 140' Ágúst Karel MagnússonOliver James Kelaart Torres 61'3 - 1
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Njarðvík fangaði stigin þrjú í rokinu í Reykjanesbæ

Hvað réði úrslitum?

Heimamenn í Njarðvík réðu betur við aðstæður í rokinu í Reykjanesbæ hvort sem var með eða á móti vindinum. Þróttarar áttu sín augnablik og sín færi en heilt yfir stýrðu Njarðvíkingar leiknum og unnu fyrir sínum fyrstu þremur stigum og áttu þau skilið þegar upp var staðið.

Bestu leikmenn

1. Oliver Kelaart

Tvö mörk í dag og alvöru vinnsla. Oliver hefur ekki alltaf heillað mig sem leikmaður en hann á sína leiki þar sem hann sýnir að hann kann alveg fótbolta. Spurning hvort að rokið henti honum betur en ella en hann var allavega flottur í dag.

2. Marc Mcausland

Alls ekki auðvelt að pikka út leikmenn eftir svona rokleik þar sem fótboltahæfileikar eru ekkert endilega í fyrsta sæti og baráttan þeim mun meiri. Marc McAusland er eiginlega samnefnari baráttu og hörku hjá Njarðvík og fær þetta slot að þessu sinni

Atvikið

Hver einasta rigningarskúr sem gekk yfir Rafholtsvöllinn. Þær urðu þess valdandi að allir sem í blaðamannboxinu sátu. Ég, vallarþulur Njarðvíkur eða Frosti eftirlitsdómari þurftum að giska svona hér um bil um allt sem fram fór á vellinum. Mjög skemmtileg upplifun sem væri eflaust hægt að gera einhverskonar leik úr.

Hvað þýða úrslitin?

Njarðvík tekur stökk upp töfluna og hoppar upp í fimmsta sæti deildarinnar með fimm stig. Gestirnir í Þrótti sitja í því sjöunda með fjögur stig .

Vondur dagur

Fótboltinn átti vondan dag. Leikir verða aldrei skemmtilegir í aðstæðum líkt og voru í kvöld. Mér skilst að Njarðvíkingar hafi óskað eftir því að fá leiknum frestað til morguns en af einhverjum ástæðum sem mér eru ókunnar stóð það ekki til boða.

Dómarinn - 8

Stór atriðin rétt og Twana var að ná að sannfæra mig. Samkvæmur sjálfum sér að mínum dómi og leyfði leiknum að fljóta eins og kostur var.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.