Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Lengjudeild karla
Domusnovavöllurinn
Alvöru skítaveður
Leiknir R.
Leiknir R.
2 - 3
ÍA
ÍA
0 - 14' Gísli Laxdal UnnarssonOmar Sowe 45'1 - 11 - 254' Viktor Jónsson1 - 379' Johannes Björn VallOmar Sowe 96'2 - 3
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Leik lokið!
Sanngjarn og kærkominn sigur fyrir ÍA
Skagamenn vinna sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu en Leiknir hefur nú tapað fjórum leikjum í röð og gæti verið í fallsæti eftir umferðina.
Leiknir R.
96. mín
Sárabótamark

Omar Sowe

ÍA
91. mín
InnBreki Þór Hermannsson
ÚtGísli Laxdal Unnarsson
90. mín
Það verður dágóður uppbótartími vegna meiðsla Sindra.
87. mín
Jón Gísli með skot en hittir ekki markið.
ÍA
80. mín
InnJón Gísli Eyland Gíslason
ÚtDaniel Ingi Jóhannesson
ÍA
80. mín
InnHákon Ingi Einarsson
ÚtArnór Smárason
ÍA
79. mín
ÍA kemst í tveggja marka forystu

Johannes Björn Vall

Viktor markvörður Leiknis missir af boltanum eftir horn. Andi Hoti bjargar á línu en Vall hirðir frákastið og skorar af stuttu færi.
77. mín
Haukur Andri með skot sem Viktor er í smá vandræðum með en handsamar svo boltann.
75. mín
Annað dauðafæri hjá Leikni
Jón Hrafn aleinn í teignum en skýtur framhjá. Þarna verður hann að hitta markið!
Leiknir R.
71. mín
Gult spjald

Arnór Ingi Kristinsson

70. mín
Hjalti með skot framhjá. Gott færi.
ÍA
69. mín
InnHaukur Andri Haraldsson
ÚtSteinar Þorsteinsson
68. mín
Leiknir klúðrar dauðafæri
Árni markvörður ÍA með slæm mistök og skyndilega var Sowe í dauðafæri en missti á einhvern hátt jafnvægið og hitti ekki boltann.
Leiknir R.
62. mín
InnRóbert Quental Árnason
ÚtSindri Björnsson
61. mín
Börurnar kallaðar inn
Sindri hefur lokið leik.
59. mín
Sindri Björnsson kom inn í hálfleik og þarf nú aðhlynningu.
57. mín
Jón Hrafn með marktilraun sem Árni ver af öryggi.
ÍA
54. mín
Þarna skoraði Viktor!

Viktor Jónsson (stoðsending: Steinar Þorsteinsson )

Skallaði boltann inn eftir fyrirgjöf frá hægri. Viktor markvörður var í boltanum en náði ekki að koma í veg fyrir að hann endaði í markinu.
Leiknir R.
52. mín
Gult spjald

Daði Bærings Halldórsson

Fyrirliði Leiknis fær gult spjald.
50. mín
Haukur Gunnarsson ljósmyndari er á heimavelli
49. mín
Arnór Ingi með skot framhjá.
48. mín
Gísli Laxdal með skot sem Viktor ver í horn.
Leiknir R.
46. mín
InnSindri Björnsson
ÚtÁrni Elvar Árnason
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Jafnt í hálfleik.
Leiknismenn kláruðu fyrri hálfleikinn af meiri krafti en gestirnir. Spennandi seinni hálfleikur framundan. Þess má geta að Gísli Laxdal skoraði Mark ÍA en ekki Viktor eins og fyrst var sagt.
Leiknir R.
45. mín
Jafnar með frabæru skoti!

Omar Sowe (stoðsending: Hjalti Sigurðsson)

Þéttingsfast frá D-boganum! Óverjandi fyrir Árna.
45. mín
Jón Hrafn með ágætis skottilraun. Framhjá.
44. mín
Tíðindalítill lokakafli fyrri hálfleiks.
36. mín
Búið að hvessa enn frekar og það hefur talsverð áhrif á leikinn.
35. mín
Leiknismenn mikið að reyna langskot. Daði Bærings skýtur yfir.
31. mín
Það er byrjað að rigna hressilega hér í Breiðholti. Það fer þó vel um mig í bílnum hjá DJ Þóri sem er fjölmiðlaaðstaða dagsins.
25. mín
Hinumegin skýtur Danni Finns hátt yfir. Hermir eftir Arnóri.
24. mín
Arnór Smárason með skot hátt yfir.
22. mín
Andi Hoti með öfluga tilraun
Skot af löngu færi sem Árni slær yfir slána!
ÍA
19. mín
Fullorðins tækling!

Hlynur Sævar Jónsson

Gult spjald
18. mín
Daníel Ingi með lipur tilþrif og tekur skotið en hittir ekki á rammann.
16. mín
Vel gert Árni Marinó!
Flott sókn Leiknis og Sowe fær hörkufæri en Árni markvörður ÍA gerir vel. Kemur út á móti og lokar.
14. mín
Daníel Ingi með skot langt framhjá.
11. mín
Jón Hrafn með hættulegt skot
Breytir um stefnu af varnarmanni og fer naumlega yfir! Leiknir að ógna núna.
10. mín
Hættuleg sókn Leiknis
Arnór með fyrirgjöf frá hægri en Sowe hittir ekki boltann
9. mín
Viktor með hættulegan sprett en Leiknismenn ná að stöðva hann.
8. mín
Skottilraun frá gestunum
Daníel Ingi með sendingu á Steinar sem tekur skotið en Viktor ver af öryggi.
ÍA
4. mín
Skagamenn taka forystuna!

Gísli Laxdal Unnarsson (stoðsending: Steinar Þorsteinsson )

Fyrsta marktilraun ÍA og boltinn endar í netinu! Steinar splundrar vörn Leiknis með stungusendingu og Gísli klárar vel.
3. mín
Leiknir fær dauðafæri
Jón Hrafn á Hjalta sem er skyndilega í dauðafæri en Árni ver í horn af stuttu færi.
1. mín
Einar flautar til leiks!
ÍA byrjar með boltann. Leiknir sækir í átt að Hraunbergssjoppu í fyrri hálfleik.
Fyrir leik
Það er skítaveður, rignir og gengur á með hviðum. Það er ólíklegt að áhorfendatala kvöldsins verði há, ekki hjálpar að bæði lið hafa átt erfiða byrjun á tímabilinu. Þar sem fjölmiðlaaðstaða er ekki til staðar við völlinn verður þessi textalýsing ekki eins ítarleg og annars hefði verið. Leiknum verður textalýst í gegnum síma.
Fyrir leik
Þrjár breytingar hjá Leikni
Leiknir gerir þrjár breytingar frá 1-0 tapi gegn Þór síðasta laugardag. Davíð Júlían Jónsson, Árni Elvar Árnason og Jón Hrafn Barkarson koma inn. Sindri Björnsson, Róbert Hauksson og Kaj Leo í Bartalstovu fara út.
Fyrir leik
Tvær breytingar á liði ÍA
Jón Þór Hauksson gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu frá 1-1 jafntefli gegn Aftureldingu. Steinar Þorsteinsson og Daníel Ingi Jóhannesson koma inn í byrjunarliðið. Jón Gísli Eyland Gíslason og Haukur Andri Haraldsson setjast á bekkinn. Daníel Ingi er 16 ára gamall og er á leið til Nordsjælland í Danmörku. Jóhannes Karl Guðjónsson er faðir hans og Ísak Bergmann, leikmaður FCK og íslenska landsliðsins, er bróðir hans.
Fyrir leik
Horfðu á leikinn beint á Youtube
Fyrir leik
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Aðstoðardómarar: Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage og Magnús Garðarsson.
Fyrir leik
Þungt högg í magann
Eftir þrjá leiki í Lengjudeildinni hefur Leiknir unnið einn leik en tapað tveimur. Liðið tapaði gegn Þór á Akureyri um síðustu helgi. „Hundfúll. Þetta er þungt högg í magann, það er óskiljanlegt hvernig við náum ekki að skora í þessum leik. Það er ótrúlegt og ef maður skorar ekki þá vinnur maður ekki fótboltaleiki," sagði Vigfús Arnar, þjálfari Leiknis, eftir tapið fyrir norðan.
Fyrir leik
Vonbrigði að byrja mótið svona
ÍA er með tvö stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar og er þetta ekki byrjunin sem félagið vonaðist eftir fyrir mót. ,,Heldur betur ekki. Það eru vonbrigði að byrja mótið svona og eftir tvo heimaleiki að vera án sigurs og það eru gríðarleg vonbrigði en við þurfum að halda áfram og gera betur." sagði Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, eftir jafntefli gegn Aftureldingu í síðustu umferð.
Fyrir leik
Gott og gleðilegt kvöld
Leiknir og ÍA mætast klukkan 19:15 í 4. umferð Lengjudeildar karla. Leikið er á gervigrasvellinum í Breiðholti þar sem aðalvöllurinn telst enn ekki vera tilbúinn í slaginn. Þar sem fjölmiðlaaðstaða er ekki til staðar við völlinn verður þessi textalýsing ekki eins ítarleg og annars hefði verið. Leiknum verður textalýst í gegnum síma.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.