SKÝRSLAN: Bæði lið svekkt með stigið í Njarðvík
Hvað réði úrslitum?
Aðstæður spiluðu liðin grátt í kvöld. Mikið rok og mikil rigning gerði liðunum erfitt fyrir. Selfoss komst yfir eftir mistök í öftustu línu hjá Njarðvíkingum í fyrri hálfleik. Njarðvíkingar jöfnuðu leikinn undir lok leiks og þar við sat.
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Tyrfingsson
Skoraði mark Selfyssinga og var þokkalegur í leiknum. Erfiðar aðstæður og fyrirliðin leiddi sitt lið næstum til sigurs.
2. Marc McAusland
Var flottur í vörn Njarðvíkur og bjargaði nokkrum sinnum vel. Stýrði varnarleik Njarðvíkinga vel.
Atvikið
Selfoss kemst yfir eftir klaufagang aftast hjá Njarðvík. Walid kemur með erfiða sendingu sem Selfyssingar vinna og gera vel í að komast yfir.
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss fer í 10 stig og heldur 4.sætinu um stund allavega. Njarðvíkingar fara í 6 stig og lyfta sér uppfyrir Vestra í 7.sætið um stund.
Vondur dagur
Oumar Diouck og Rafael Victor fengu báðir færi til þess að koma Njarðvíkingum fyrr inn í leikinn. Diouck fékk færi sem hann hefði skorað úr í fyrra og Rafael Victor fékk frábæra fyrirgjöf sem hann hefði átt að ráðast á óvaldaður í teignum í stað þess að taka niður og gefa Selfoss færi á að verjast.
Dómarinn - 8
Mjög vel dæmdur leikur hjá ÞÞÞ. Leyfði leiknum að fljóta og engar furðulegar ákvarðanir. Dómarateymið komst vel frá verkefninu.



