Fotbolti.net
Brynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Lengjudeild kvenna
Kórinn
HK
HK
6 - 1
KR
KR
Arna Sól Sævarsdóttir 1'1 - 0Eva Stefánsdóttir 11'2 - 0Arna Sól Sævarsdóttir 31'3 - 0Arna Sól Sævarsdóttir 60'4 - 0Emma Sól Aradóttir 72'5 - 0Isabella Eva Aradóttir 75'6 - 06 - 194' Jewel Boland
Dómari: Przemyslaw Janik

SKÝRSLAN: HK á toppnum eftir risa sigur í Kórnum

Hvað réði úrslitum?

HK komst einu marki yfir eftir 35 sekúndur og voru leikmenn KR strax farin að gefast upp eftir markið. Andinn hjá HK var sterkur alveg frá byrjun og sóttu þau mikið á KR.

Bestu leikmenn

1. Arna Sól Sævarsdóttir

Það kom enginn annar til greina. Arna Sól átti stórkoslegan leik í dag. Skoraði þrennu og lagði upp eitt mark. Hún átti ennþá fleiri færi í leiknum þar sem botlinn var nálægt því að fara inn í mark.

2. Isabella Eva Aradóttir

Isabella var mjög flott í leiknum. Skapaði fullt af tækifærum frá miðju og áttir nokkrar glæsilegar sendingar. Hún skoraði að aukis mjög flott mark fyrir utan teig.

Atvikið

Klárlega atvik leiksins var þegar Brookelynn Paige fær boltann á vinstri hlið marksins. Finnur sér ekki opið færi, þannig hún hleypur sjálf hálfan hring kringum teiginn með boltan þangað til hún er kominn á hægri hlið marksins og reynir svo skoti. Varnamaður KR fer fyrir skotið, en Arna Sól fær svo boltann á sig og skýtur honum í autt mark.

Hvað þýða úrslitin?

HK fer upp í efsta sæti deildarinnar með 16 stig, eftir að Víkingur missteig sig gegn Aftureldingu. KR liggur ennþá í 9. sæti deildarinnar með aðeins 3 stig.

Vondur dagur

Það er hægt að segja að allt KR liðið hafi átt vondan dag. Vörninn var ekki á sýnum stað. Það var mikið skotið fyrir utan teig og reynt að skjóta þannig að Bergljót í marki KR myndi ekki nág að teygja sér í boltann, sem gekk tvisvar eða þrisvar sinnum. Svo var lítið að gerast frammi hjá KR. Eini leikmaður KR sem mér fannst hafa alvöru vilja í þessum leik var Jewel Boland, sem náði að skora alveg í blá lokinn.

Dómarinn - 7

Lítið fyrir Przemyslawog teymi hans að gera í þessum leik. Engin spjöld fóru á loft, vegna þess að það var aldrei ástæða til þess í þessum leik. Vel dæmdur leikur hjá þeim.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.