SKÝRSLAN: Allt jafnt í hörkuleik í Egilshöll
Hvað réði úrslitum?
Jafntefli er líklega sanngjörn niðurstaða. Bæði lið hefði getað stolið þessu en það vantaði herslumuninn á seinasta þriðjungi vallarins.
Bestu leikmenn
1. Tómas Johannessen
Var hrikalega flottur í dag og skoraði gott skallamark. Magnað að hugsa til þess að hann sé bara á sextánda aldursári. Hans annað mark í sumar. Leggið nafnið á minnið!
2. Axel Freyr Harðarsson
Mark og stoðsending. Mjög fínn leikur
Atvikið
Setjum það á seinna mark Fjölnis. Rúmlega tveimur mínútum eftir að Grótta hafði komist yfir.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnismenn fara í 14 stig og eru einir á toppnum í bili að minnsta kosti. Grótta gerir fjórða jafnteflið í sex leikjum
Vondur dagur
Set þetta á þá staðreynd að ég hafi horft á leik í næst efstu deild inni í Egilshöll þann 8. júní. Það finnst engum gaman að spila eða horfa á leiki í Íslandsmóti inni í þessari höllþ
Dómarinn - 8
Ljómandi fínn bara. Erfiður leikur að dæma en hann gerði það af mikilli prýði.



