SKÝRSLAN: Stíflan brast á Kópavogsvelli
Hvað réði úrslitum?
Gæði og reynsla Fylkis. Eftir fyrsta markið taka þær völdin í leiknum og sigla þessu örugglega heim í Árbæinn. Fylkiskonur voru góðar sóknarlega og spiluðu oft á tíðum mjög vel í gegnum Augnablik.
Bestu leikmenn
1. Eva Rut Ásþórsdóttir
Fyrirliði Fylkis var allt í öllu í dag. Frábær frammistaða sem hún kórónaði með þremur stoðsendingum.
2. Helga Guðrún Kristinsdóttir
Skoraði tvö mörk í dag og var sífellt að ógna á hægri kantinum.
Atvikið
Tvö atvik í dag. Fram að fyrsta markinu voru bæði lið búin að fá færi og þetta var jafn leikur. Eftir það raungerðist stuðningsmannalag Fylkis, stíflan brast. Hitt atvikið er markið sem Tijana skoraði úr hornspyrnu. Ekki á hverjum degi sem slíkt gerist.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir er komið með tíu stig í deildinni og situr núna í fjórða sætinu. Augnablik er hins vegar með fjögur stig í áttunda sætinu.
Vondur dagur
Augnabliksliðið eftir fyrsta markið fær þennan stimpil í kvöld. Þær voru inni í leiknum fram að því fyrsta markinu en eftir það opnuðust flóðgáttirnar og þær náðu ekki að komast almennilega inn í leikinn aftur.
Dómarinn - 8
Lítið hægt að kvarta yfir frammistöðu Guðna og hans teymis í dag.



