SKÝRSLAN: Tár, bros og þrumufleygur Daníels á Greifavellinum
Hvað réði úrslitum?
Daníel Hafsteinsson. Hann skoraði eitt af mörkum sumarsins á ögurstundu fyrir KA menn þegar að leikurinn stefndi í vítaspyrnukeppni.
Bestu leikmenn
1. Daníel Hafsteinsson (KA)
Var hægur í gang, en var langbesti leikmaður KA í seinni hálfleik og svo í framlengingunni. Tók menn á, fann sendingar og skoraði svo eitt sláin, inn.
2. Bragi Karl Bjarkason (ÍR)
Olli miklum usla með hraða sínum og leikni. Gríðarlega óheppinn að skora ekki þegar að skot hans hafnaði í stönginni.
Atvikið
Sigurður Hjörtur Þrastarson gleypti flautuna andartökum fyrir leikslok þegar að Ívar Örn virtist vera brotlegur í vítateig KA manna. Nokkrum augnablikum síðar var hann búinn að flauta til leiksloka og eignast óvini fyrir lífstíð í neðra Breiðholti.
Hvað þýða úrslitin?
KA ná í sinn fyrsta sigur á tímabilinu, komust áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins og sækja næst Íslandsmeistara Víkings heim í Bestu-deild karla. Spilamennska liðsins var ekki uppá marga fiska og þeir þurfa verulega að spýta í lófana til þess að gefa Víkingum alvöru leik. ÍR ljúka leik í Mjólkurbikarnum, en næsti leikur liðsins er fyrsti leikur í Lengjudeildinni. Þá fara þeir til Keflavíkur og frammistaða liðsins í dag gefur þeim ástæðu til bjartsýni fyrir sumarið.
Vondur dagur
Sóknarleikur KA er of hægur og auðlesinn. Mörk þeirra í dag voru annars vegar eftir hræðileg varnarmistök ÍR og hins vegar eftir alvöru töfrabrögð frá Daníel Hafsteinssyni. Hallgrímur Jónasson mun vinna hörðum höndum að því að bæta þessa hlið leiksins hjá liðinu, enda gömul saga og ný að það er erfitt að vinna fótboltaleiki þegar þú skorar lítið af mörkum.
Dómarinn - 5
Fram að vítaspyrnudramatíkinni var hann bara hinn þokkalegasti, en þetta atvik dregur hann helvíti langt niður.



