Leik lokið!
0-0 jafntefli er niðurstaðan í þessum botnbaráttuslag.
94. mín
Gult spjald
Guðmundur Arnar Svavarsson
91. mín
Arnór Breki tekur spyrnuna meðfram jörðinni en Vestri hreinsar boltann.
90. mín
Gult spjald
Morten Ohlsen Hansen
90. mín
Halldór Jón sækir aukaspyrnu alveg við vítateigslínuna.
89. mín
Gult spjald
Jeppe Pedersen
88. mín
Jeppe Pedersen tekur spyrnuna sem Óli grípur afskaplega vel.
87. mín
Guðmundur tekur spyrnuna sem endar í annari hornspyrnu hinum megin.
87. mín
Vestri fær hornspyrnu
86. mín
Fylkir á aukaspyrnu í ágætis fyrirgjafarstöðu sem Arnór tekur en Eskelinen grípur boltann.
85. mín
Gult spjald
Vladimir Tufegdzic
82. mín
InnJeppe Pedersen
ÚtPétur Bjarnason
82. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtBenedikt V. Warén
82. mín
InnVladimir Tufegdzic
ÚtGunnar Jónas Hauksson
81. mín
InnÞóroddur Víkingsson
ÚtNikulás Val Gunnarsson
81. mín
Benedikt Warén tekur spyrnuna en hún endar í markspyrnu.
81. mín
Vestri fær hornspyrnu
80. mín
Fylkir hreinsar hornspyrnuna út úr teignum.
79. mín
Vestri fær aðra hornspyrnu
Benedikt Warén tekur spyrnuna sem Óli blakar yfir markið.
79. mín
Vestri fær hornspyrnu
74. mín
InnIbrahima Balde
ÚtSilas Dylan Songani
72. mín
Arnór tekur spyrnuna en Vestri hreinsar boltann. Þeir fara í hraðaupphlaup og Fatai reynir skot frá miðju en það fer yfir markið.
71. mín
Fylkir fær aukaspyrnu í ágætis fyrirgjafarstöðu á hægri kantinum.
68. mín
InnElvar Baldvinsson
ÚtEiður Aron Sigurbjörnsson
67. mín
Eiður Aron fær smá aðhlynningu.
62. mín
Nikulás Val með skottilraun fyrir utan teig sem fer framhjá marki.
59. mín
Elmar Atli með fínan skalla á markið sem Óli handsamar.
57. mín
InnHalldór Jón Sigurður Þórðarson
ÚtEmil Ásmundsson
57. mín
Ekkert kom út úr þessari hornspyrnu.
56. mín
Vestri fær hornspyrnu
51. mín
Guðmundur tekur spyrnuna en ekkert kemur úr henni.
50. mín
Vestri fær aðra hornspyrnu
Benedikt Warén tekur spyrnuna sem Óli blakar yfir markið.
50. mín
Vestri fær hornspyrnu
48. mín
Ásgeir Eyþórs brýtur á Pétri miðsvæðis. Vestramenn taka síðan aukaspyrnuna og Ragnar Bragi brýtur strax á Silas.
47. mín
Emil fær boltann við vítateiginn með bakið í markið. Hann snýr sér í 180 gráður og á skot sem fer framhjá.
47. mín
Silas fær boltann frá Pétri Bjarna og hann reynir síðan skot sem fer framhjá.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Fylkismenn byrja með boltann í seinni hálfleik og það er Emil Ásmunds sem sparkar okkur af stað.
45. mín
Hálfleikur
Ég hef alveg séð skemmtilegri fótboltaleiki...
Svei mér þá ef ég leggst ekki bara á bæn núna í hálfleik í þeirri von að seinni hálfleikurinn verði skemmtilegri.
Svei mér þá ef ég leggst ekki bara á bæn núna í hálfleik í þeirri von að seinni hálfleikurinn verði skemmtilegri.
45. mín
+1 í uppbótartíma
45. mín
Þórður Gunnar á fyrirgjöf inn í teiginn á Matthias sem reynir skot en það fer framhjá markinu.
44. mín
Hornspyrnan endar í markspyrnu.
43. mín
Vestri fær hornspyrnu
Elmar á fyrirgjöf inn í teiginn sem Birkir reynir að hreinsa. Boltinn endar hins vegar hjá Gunnari sem er við vítateiginn og reynir skot sem fer í varnarmann Fylkis.
39. mín
Guðmundur með fastan bolta fyrir markið sem Óli ver.
38. mín
Gult spjald
Emil Ásmundsson
Þriðja brotið hans í dag.36. mín
Emil tekur spyrnuna en boltinn fer út fyrir endamörk vallarins, vindurinn að spila inn í.
36. mín
Fylkir fær hornspyrnu
Arnór Breki fær sendingu frá Emili inn í teiginn og hann reynir skot sem fer af varnarmanni Vestra og endar í hornspyrnu
31. mín
Silas með fína sendingu inn fyrir vörn Fylkis af hægri kantinum yfir til Benedikts Warén á vinstri kantinum en Benedikt er hins vegar rangstæður.
22. mín
Silas kemst í ágætis hraðaupphlaup eftir mistök í vörn Fylkis en hann nær ekki að nýta sér það almennilega og á skot hátt yfir markið.
21. mín
Afskaplega lítið um færi fyrstu tuttugu mínútur leiksins.
18. mín
Guðmundur tekur spyrnuna sem er hreinsuð úr teig Fylkis.
17. mín
Vestri fær hornspyrnu
Elmar reynir fyrirgjöf en Ragnar Bragi kemur í veg fyrir hana.
14. mín
Emil Ásmunds fer seint í Morten og brýtur á honum. Fær smá tiltal frá Ívari.
10. mín
Emil tekur spyrnuna en hún fer út fyrir endamörk vallarins.
10. mín
Fylkir fær hornspyrnu
8. mín
Emil lætur vaða úr aukaspyrnunni en Eskilenen á ekki í miklum vandræðum með það að handsama boltann.
7. mín
Fylkir fær aukaspyrnu á góðum stað
Morten brýtur á Matthias á góðum stað fyrir Fylki við vítateig Vestra.
6. mín
Silas með fyrirgjöf af hægri kantinum sem Ásgeir hreinsar.
6. mín
Benedikt Warén tekur spyrnuna en Fylkir nær að hreinsa þetta.
5. mín
Vestri fær hornspyrnu
Orri skallar fyrirgjöf í hornspyrnu.
3. mín
Rok
Það er rosalega mikill vindur á Ísafirði í dag sem mun eflaust lita leikinn. Fylkir spilar með vindinn í bakið í fyrri hálfleik.
2. mín
Guðmundur tekur spyrnuna en Fylkir nær að hreinsa.
2. mín
Vestri fær hornspyrnu
1. mín
Leikur hafinn
Vestri byrjar með boltann og það er Silas sem sparkar okkur af stað
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völl
Vestri í dökkbláum búningum og Fylkir í appelsínugulu.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, gerir eina breytingu á byrjunarliðinu eftir tapið gegn Val í síðustu umferð. Jeppe Gertsen kemur inn í byrjunarliðið fyrir Gustav Kjeldsen en hann er í leikbanni eftir að hafa litið rauða spjaldið í síðasta leik.
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, gerir sömuleiðis eina breytingu á byrjunarliðinu eftir tapið gegn FH í síðustu umferð. Ásgeir Eyþórsson kemur inn í byrjunarliðið í stað Þórodds Víkingssonar sem tekur sér sæti á bekknum.

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, gerir sömuleiðis eina breytingu á byrjunarliðinu eftir tapið gegn FH í síðustu umferð. Ásgeir Eyþórsson kemur inn í byrjunarliðið í stað Þórodds Víkingssonar sem tekur sér sæti á bekknum.

Fyrir leik
Jóhann Páll spáir í spilin
Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamaður á RÚV spáir í 21. umferð sem fer öll fram í dag.
Vestri 1-1 Fylkir
Það er flennistórt X skrifað á ennið á þessum Kraftgallaleik. Vestramenn komast yfir en skrokkurinn Þóroddur Víkingsson (algjört Íslendingasögunafn) jafnar. Þóroddur er markahæstur í liðinu en bara spilað 29% mínútna. Play him, Rúnar.

Vestri 1-1 Fylkir
Það er flennistórt X skrifað á ennið á þessum Kraftgallaleik. Vestramenn komast yfir en skrokkurinn Þóroddur Víkingsson (algjört Íslendingasögunafn) jafnar. Þóroddur er markahæstur í liðinu en bara spilað 29% mínútna. Play him, Rúnar.

Fyrir leik
Gengi liðanna að undanförnu
Í síðustu fimm leikjum hafa bæði lið fengið fimm stig. Vestri vann mikilvægan sigur fyrir botnbaráttuna gegn KR á dögunum og gerði jafntefli við ÍA og Víking. Fylkir vann einnig mikilvægan sigur fyrir botnbaráttuna gegn HK á dögunum og gerði jafntefli við KA og Fram.
Fyrir leik
Dómarateymið í dag
Ívar Orri Kristjánsson er með flautuna í dag. Honum til halds og trausts á hliðarlínunum eru þeir Birkir Sigurðarson og Bergur Daði Ágústsson. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson er varadómari og eftirlitsmaður er Þórður Georg Lárusson.


Fyrir leik
Fyrri viðureign
Liðin mættust í 10. umferð deildarinnar í Árbænum í miklum markaleik. Fylkir vann þann leik 3-2 eftir mörk frá Matthias Præst, Þóroddi Víkingssyni og Ómari Birni Stefánssyni. Mörk Vestra skoruðu Elmar Atli Garðarsson og Jeppe Gertsen.
Fyrir leik
Gustav Kjeldsen í leikbanni
Gustav Kjeldsen, varnarmaður Vestra, fékk að líta rautt spjald í síðasta leik gegn Val. Hann er því í leikbanni í dag. Það er hins vegar enginn leikmaður Fylkis í leikbanni.


Fyrir leik
Sex stiga leikur
Það er sannkallaður sex stiga leikur á Ísafirði hér í dag. Fylkir vermir botnsæti deildarinnar með 16 stig en Vestri situr í tíunda sætinu með 17 stig. Fari eitt lið með sigur af hólmi hér í dag gæti það reynst afar dýrmætt í lok tímabils þegar talið er stigin úr hattinum góða.
Fyrir leik
Velkomin!
Komið sæl kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu í viðureign Vestra gegn Fylki á Kerecisvellinum í 21. umferð Bestu deild karla.




