Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
HK
HK
Besta-deild karla
Kórinn
1 - 0
Fram
Fram
Þorsteinn Aron Antonsson 85'1 - 0
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Héldu hreinu í fyrsta sinn í rúmt ár

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn heilt yfir var mjög leiðinlegur og gæðalítill. Þó svo að Fram hafi verið mun meira með boltann þá gerðu þeir lítið sem ekkert með hann og ógnuðu varla úr opnum leik gegn HK-ingum sem héldu síðast hreinu í júlí á síðasta ári. HK-ingar geta þó verið ánægðir með stigin 3. Leikurinn var einstaklega hægur og óspennandi, áður en að HK-ingar komust yfir.

Bestu leikmenn

1. Þorsteinn Aron Antonsson

Þorsteinn virkilega góður í dag og kórónaði góða frammistöðu með marki undir lok leiks.

2. Christoffer Petersen

Christoffer varði vítaspyrnu Fred vel en þurfti annars ekki að verja mikið í dag. Dagur Örn Fjeldsted á líka skilið tilnefningu, hann átti góða stoðsendingu og var lúsiðinn.

Atvikið

Það var tvennt áhugavert sem gerðist í þessum leik, vítaklúður Fred og mark Þorsteins Arons, meira var það ekki. Ætli vítaklúðrið hafi ekki verið meira spennandi.

Hvað þýða úrslitin?

HK-ingar koma sér úr fallsæti og í það tíunda. Framarar geta ekki komist í efri hlutann fyrir tvískiptingu en þeir eru í 8. sæti.

Vondur dagur

Fred Saraiva klúðraði víti undir lok fyrri hálfleiks og reyndist það dýrt.

Dómarinn - 7

Frumraun Gunnars Freys Róbertssonar í efstu deild gekk bara ágætlega. Mér sýndist Þorsteinn Aron vera með hendurnar upp við líkamann er hann fékk dæmt á sig víti, annars skil ég lítið hvað er og hvað er ekki hendi í dag. Heilt yfir fínasta dómgæsla í leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.